Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hlutabréfaverð Alphabet fellur

Read Full Article →

Hlutabréfaverð Alphabet, móðurfélags Google, féll um allt að 7% eftir opnun markaða vestanhafs. Útlit er fyrir þetta gæti orðið verstu dagur félagsins á hlutabréfamarkaði á þessu ári. Áhyggjur af stöðu Google í gervigreindarkapphlaupinu hafa aukist eftir að tveir lykilstarfsmenn yfirgáfu félagið á skömmum tíma. Þessu greinir fréttastofan CNBC frá. Noam Shazeer, varaformaður verkfræðisviðsins hjá Google og einn af leiðtogum gervigreindarlíkans fyrirtækisins, Gemini, tilkynnti í síðustu viku að hann hygðist ganga til liðs við OpenAI. Á föstudag greindi svo John Jumper, annar lykilstarfsmaður innan verkfræðisviðsins, frá því að hann væri á leið til keppinautarins Anthropic eftir níu ár hjá Google. Jumper hlaut Nóbelsverðlaun árið 2024 fyrir þróun AlphaFold, gervigreindarlíkans sem hefur átt þátt í að flýta verulega fyrir líf- og læknisfræðirannsóknum. Þróunin kemur einnig í kjölfar ummæla Satya Nadella, forstjóra Microsoft, sem sagði í viðtali um helgina að markaðurinn fyrir gervigreind væri að verða sífellt einsleitari. Slík þróun gæti vakið efasemdir um hvort gríðarlegar fjárfestingar tæknirisanna í gervigreind muni skila varanlegu samkeppnisforskoti. Google hefur aflað sér um 141 milljarða dala í skuldum og eigin fé frá því í október til að fjármagna uppbyggingu á sviði gervigreindar. Ef gervigreindarlíkön verða ódýrari og auðveldari í staðgengni gæti það aukið þrýsting á afkomu fyrirtækisins.

Share this article