Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 2.7.2026 | 8:00 Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Ingólfur Bender Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Ísland er gott land að búa í. Lífskjör hér eru meðal þeirra bestu í heimi, atvinnuþátttaka er mikil, mannauðurinn sterkur og íslenskt atvinnulíf hefur ítrekað sýnt að það getur brugðist hratt við breytingum og skapað ný verðmæti. Það er mikilvægt að halda þessu til haga nú þegar útlitið í efnahagslífinu er dökkt og aðstæður eru krefjandi. Svartsýni hefur aukist verulega meðal almennings og stjórnenda fyrirtækja síðustu mánuði. Í nýrri könnun sem Gallup gerði meðal stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins kemur fram að aðeins 5% telja aðstæður í efnahagslífinu góðar en 64% telja þær slæmar. Þar kemur einnig fram að aðeins 5% telja að aðstæður muni batna á næstu sex mánuðum en 58% telja að þær muni versna. Þessu til viðbótar sýnir væntingavísitala Gallup að almenningur hefur litla tiltrú á aðstæðum í efnahagsmálum um þessar mundir og eru svartsýnir á framhaldið. Góð lífskjör í dag tryggja ekki sjálfkrafa góð lífskjör á morgun. Til að tryggja góð lífskjör til framtíðar þarf að hlúa að því sem skapar sterka samkeppnishæfni. Þar skipta mannauður, nýsköpun, innviðir, orku- og umhverfismál og hagkvæmt, skilvirkt og stöðugt starfsumhverfi mestu máli, líkt og fjallað er um í nýlegri greiningu Samtaka iðnaðarins. Umbætur í þágu samfélagsins alls Lífskjör, mæld með landsframleiðslu á mann, hafa lítið sem ekkert batnað frá árinu 2018. Sjö ár eru liðin og við höfum staðið í stað. Þetta er ekki tilviljun eða óhjákvæmileg afleiðing ytri aðstæðna. Þetta er vegna þess að við höfum ekki tekist nógu ötullega á við þær áskoranir sem standa í vegi fyrir aukinni verðmætasköpun hér á landi. Við höfum ekki náð að bæta samkeppnishæfnina. Þvert á móti hefur hún versnað. Í nýju mati IMD-háskólans í Sviss á alþjóðlegri samkeppnishæfni lækkaði Ísland um sjö sæti, úr 15. sæti árið 2025 í 22. sæti árið 2026. Sú lækkun er áminning um að önnur lönd bíða ekki eftir okkur í alþjóðlegri samkeppni. Nú er rétti tíminn til að stilla saman strengina og finna samhljóminn um nauðsynlegar aðgerðir. Byggja þarf á þjóðarsátt þar sem stjórnvöld, atvinnulíf og aðilar vinnumarkaðarins leggja sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu og vöxtum, efla samkeppnishæfni Íslands og styrkja verðmætasköpun. Með þjóðarsátt er hægt að draga úr óvissu, auka traust og tiltrú til lengri tíma og tryggja að íslenskt hagkerfi standi sterkara til framtíðar. Samkeppnishæfni er ekki sérhagsmunamál fyrirtækja heldur lífskjaramál almennings. Þegar samkeppnishæfnin er sterk geta fyrirtæki fjárfest meira, tekið upp nýja tækni, ráðið fleira fólk og greitt hærri laun. Þá eykst útflutningur, skattstofnar styrkjast og lífskjör landsmanna batna. Við höfum gert þetta áður Við höfum þegar séð hvað er hægt að gera þegar rétt er á málum haldið. Vöxtur tækni- og hugverkaiðnaðar á síðustu árum er eitt skýrasta dæmið um nýja sókn í íslensku efnahagslífi. Útflutningstekjur greinarinnar námu 369 milljörðum króna árið 2025 sem eru 19% af heildarútflutningstekjum Íslands. Á aðeins fimm árum hafa þær aukist um nær 160 milljarða króna og skilar greinin nú hærri útflutningstekjum en hinn rótgróni og öflugi sjávarútvegur. Þetta er árangur sem vert er að fagna. Þessi þróun sýnir að Ísland getur byggt nýjar útflutningsstoðir á hugviti, þekkingu og nýsköpun samhliða þeim greinum sem fyrir eru. Hún sýnir líka að opinber stefna skiptir máli. Þegar frumkvöðlar, fyrirtæki, fjárfestar og stjórnvöld toga í sömu átt verður til umhverfi þar sem hugmyndir geta orðið að verðmætum störfum og útflutningstekjum. Ísland áfram í fremstu röð Ný atvinnustefna stjórnvalda getur orðið mikilvægur stökkpallur inn í næsta vaxtarskeið. Þar er lögð áhersla á mannauð, innviði, nýsköpun, skilvirkt regluverk og aðgang að orku. Þetta eru réttu áherslurnar. Árangurinn mun hins vegar ráðast af framkvæmdinni. Nú þarf að fjárfesta í menntun og verknámi, efla nám í raun- og tæknigreinum, einfalda regluverk, hraða uppbyggingu innviða og tryggja orku fyrir ný verkefni. Jafnframt þarf að gæta þess að skattar og gjöld dragi ekki úr fjárfestingu og verðmætasköpun á sama tíma og kallað er eftir aukinni samkeppnishæfni. Íslendingar hafa sýnt að þeir geta byggt upp sterkar atvinnugreinar, aukið útflutning og bætt lífskjör. Með stöðugleika, skýrri stefnu og tiltrú á krafti atvinnulífsins getum við aukið framleiðni, skapað verðmætari störf og tryggt að Ísland verði áfram í fremstu röð þegar kemur að lífskjörum. Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Miklar launahækkanir og verðbólga fylgjast að Mikill skellur fyrir Bandaríkin Ný gerð laxateljara sett upp í Hofsá Telur lóðasamninga fullkomlega eðlilega Aðsend grein: Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Umræðan Tár, bros og tollar Bær tækifæranna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Telur lóðasamninga fullkomlega eðlilega Miklar launahækkanir og verðbólga fylgjast að Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmenn feimnari við skolun afturendans Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Hálfgert haustveður á vestanverðu landinu Greinilega mikið ósamræmi „Fannst ég geta gert hlutina betur“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Fjölga bílastæðum við Háafoss eftir nýfundna frægð Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Miklar launahækkanir og verðbólga fylgjast að Mikill skellur fyrir Bandaríkin Ný gerð laxateljara sett upp í Hofsá Telur lóðasamninga fullkomlega eðlilega Aðsend grein: Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Umræðan Tár, bros og tollar Bær tækifæranna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Slysið á Eir á borði rannsóknardeildar lögreglu Búseta og bakgrunnur hafa áhrif „Ekki vekja athygli á þér, ekki monta þig“ Gert að tíunda hval vertíðarinnar Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmenn feimnari við skolun afturendans Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð Hálfgert haustveður á vestanverðu landinu Greinilega mikið ósamræmi „Fannst ég geta gert hlutina betur“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Fjölga bílastæðum við Háafoss eftir nýfundna frægð Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið

Share this article