Innlent | Morgunblaðið | 17.7.2026 | 7:00 Aðsend grein: Samkeppni og lífskjör Vilhjálmur Bjarnason Mbl.is/María Matthíasdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Margur maðurinn er þeirrar skoðunar að lífskjör ráðist af kjarasamningum. Það er misskilningur. Í kjarasamningum er þráttað um skiptingu þeirra verðmæta sem verða til við framleiðsluna. Ef meiru er skipt en til skiptanna er, veldur það iðulega verðbólgu og skerðingu á þeim lífskjarabata sem að var stefnt. Í útflutningsgreinum ráðast laun af framleiðni. Kaupmáttur launa innanlands ræðst svo af verði vöru í hlutfalli við laun. Samkeppni Fátt er jafn skemmtilegt í hagfræði og það að rýna í samkeppni. Í kennslubókum er samkeppnisrófi skipt upp í kvarða frá einokun og til fullkominnar samkeppni. Á milli þessara tegunda samkeppni koma nokkur millistig: tvíkeppni, fákeppni og einkasölusamkeppni. Sennilega er einkasölusamkeppnin skemmtilegasta samkeppnisformið fyrir þá sem horfa á. Í einkasölusamkeppni er tekist á um hégóma neytenda. Merkasta einkasölusamkeppni á okkar fátæklega markaði er Pepsi og Coke. Allir nýir framleiðendur sem koma inn á þennan markað tapa en sigurvegararnir eru alltaf Pepsi og Coke. Að auki tapa neytendur. Ef neytandinn vissi hver er framleiðslukostnaður á Coke-dós myndi neytandinn segja: „Nei takk, ég læt ekki hafa mig að fífli.“ Neytandinn veit sjaldnast um nokkurn „framleiðslukostnað“, aðeins hvað varan kostar í verslun. Þar er nokkur munur á. Fundir í Öskjuhlíð Í bók sinni „Auðlegð þjóðanna“ segir höfundurinn, Adam Smith, að framleiðendur komi aldrei saman til fundar, nema í þeim tilgangi einum að sameinast gegn viðskiptavinum sínum. Það gerðu grænmetissalar á Íslandi í Öskjuhlíðinni. Verðlagseftirlit Hér í landi störfuðu lengi átta smjörlíkisgerðir. Allir framleiðendur höfðu það mjög gott. Viðmiðunin var að bókaforlag gæti gefið út bækur sem ekki seldust vel. Neytendur borguðu. Hlutverk verðlagseftirlits var að gæta að því, hver „framleiðslukostnaður“ smjörlíkis væri. Það var verðið sem neytandinn átti að borga, að viðbættu álagi verslunar, þannig að kaupmaðurinn hefði það gott. Í dag á verðlagseftirlit að beinast að tæknilegri einokun. Með tæknilegri einokun er átt við starfsemi á markaði, sem erfitt er að komast inn á. Það á til dæmis við um veitustarfsemi og eldsneytisdreifingu. Eldsneytisdreifingin leysti sína nálgun til einokunar með því að hrófla ekki við viðskiptavinum annarra olíufélaga, því olíufélögin vildu hafa það gott. Allar vísbendingar benda til þess að olíufélögin hafi hækkað álagningu sína til þess að ná sömu framlegð í heild, og var áður en rafvæðing bílaflotans hófst. Einokun í veitustarfsemi á höfuðborgarsvæðinu byggist ekki lengur á kostnaði við veitustarfsemi, heldur hve mikið Reykjavíkurborg getur leyft sér að taka í arðgreiðslur, til að standa undir öllum sínum gæluverkefnum, sem eru komin langt út fyrir öll mörk borgarinnar. Skiptin úr Verðlagseftirliti yfir í Samkeppnisstofnun tóku langan tíma og eru varla leyst enn. Tæknileg einokun í sínu vonda formi Það er erfitt að fullyrða, hvert er versta form tæknilegrar einokunar á Íslandi, því enginn er til þess að gæta hagsmuna neytenda. Fjármálaeftirlitið á að gæta að neytendavernd á fjármálamarkaði. Fjármálaeftirlitið gætir fyrst og fremst að eigin tilvistarvernd. Gjaldtaka og vaxtamunur fjármálafyrirtækja virðist lítt undir eftirliti og er talinn eðlilegur af eftirlitsaðila, sem fær sínar skýrslur til að vista í gögnum sínum. Eða gjaldtaka hjá innlendum verðbréfasjóðum! Þar eru hæg heimatök að bera saman við erlenda verðbréfasjóði. Hvað með gjaldtöku í greiðslukortaviðskiptum? Er gjaldtakan í einhverju samræmi við kostnað og áhættu fjármálafyrirtækisins? Þessu getur ritari ekki svarað, en ritari veit hvað hann borgar. Tæknileg einokun í versta formi Gjaldtaka fjármálafyrirtækja er þó ekki versta form tæknilegrar einokunar. Verst er gjaldtaka ISAVIA, sem rekur flugvelli og tengda starfsemi á Íslandi. Þar eiga neytendur ekkert val. Verslanir og þjónustustarfsemi á Keflavíkurflugvelli keppast um aðgang að gólfrými og aðgangsgjaldið kemur beint í höfuðið á neytendum. Fríhafnarstarfsemi hefur verið boðin út. Með áfengisgjaldi á áfengi í fríhöfninni í Keflavík er verðið mjög nærri því verði sem greitt er í vínbúðum í landinu. Frá sjónarmiði áfengisneyslu er lítill sem enginn ávinningur að því að byrja eða enda á vínneyslu á ferðalagi í Keflavík. Nú líður ritara eins og gamalli konu, sem var að lýsa meinsemdum í fari tengdasonar síns. Það versta var eftir. Í tilfelli gömlu konunar var það ást tengdasonarins á öðrum karlmönnum. Hjá ISAVIA í Keflavík er það kröfurækt við verðlagningu á bílastæðum við flugvöllinn. Gjaldskráin er með öllu óskiljanleg og mjög illa aðgengileg fyrir neytendur. Ritara er í fersku minni eitt sinn þegar verð á bílastæðum var hækkað. Ástæðan var uppbygging nýrra bílastæða. Ekki var neytandinn að nýta þau þegar þau voru ekki til. Og aldrei hefur verið tilkynnt um verðlækkun á bílastæðum sakir þess að ný bílastæði hafa verið tekin í notkun. Kröfurækt ISAVIA er nýtt til hins ýtrasta með óskiljanlegri gjaldskrá, takmörkuðum upplýsingum um greiðsluvenjur. Notkun á skammtímastæði fyrir utan flugstöðina í Keflavík er gjaldfrjáls í 15 mínútur en þá byrjar kröfurækin að virka. Ef ekki eru greiddar kr. 790 á einhverjum greiðslustandi í flugstöðinni, þá kemur þjónustugjald, kr. 1.490. Samtals verður krafan í heimabanka því kr. 2.280 fyrir takmarkaðan tíma á skammtímastæði. Ef ekið er út af stæði 8 klukkustundum of seint vegna breytinga á flugi, leggst á að því er virðist tvöfalt daggjald. Víst er að stjórn og stjórnendur ISAVIA hafa ekki hagsmuni neytenda í huga. Ritari vonar að fjármálaráðherra, sem skipar stjórn, sé þetta ljóst. Siðuð samfélög Í siðuðum samfélögum eru samkeppnisbrot talin með alvarlegustu glæpum. Alvarleikinn felst í því að brotaþolinn er lítt skilgreindur. Brotaþolar eru óljóst mengi fólks, gjarnan heil samfélög, þar sem hver og einn getur lítt afmarkað sitt tjón og á því erfitt með að sækja bætur fyrir meint tjón. Það er hægt að áætla með nokkurri vissu hver er ábati þess, sem fremur brotið. Um það dugir lítt fyrir lærða hagfræðinga á barmi Nóbelsverðlauna að þræta. Að auki á að teyma þá sem brjóta af sér í samkeppnisbrotum á brott í járnum, svo þeir valdi ekki frekari skaða. Neytendavernd Það kann að vera að þeir sem níðast á neytendum haldi sig eiga afsökun. En það er ekki til afsökun í samkeppnisbrotum, fremur en til er afsökun fyrir íslenskan mann að halda framhjá franskri konu. Hér í landi eru settar upp sýndarstofnanir til að viðhafa neytendavernd. Samkeppnisstofnun er litlu betri en Verðlagseftirlitið, sem gætti hagsmuna framleiðenda, heildsala og smásala. Fjármálaeftirlitið er lítil vernd fyrir neytendur á fjármálamarkaði. Fjármálaeftirlitið verndar sjálft sig. Eiginlega verra en ekkert. Hver hefur nokkurn tíma séð fátækt fólk haga sér eins og manneskjur? Gagnslaus neytendavernd eflir fátækt. Vilhjálmur Bjarnason, var alþingismaður og er hagfræðingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skilin eftir sex ára hjónaband Þetta kosta miðar á úrslitaleik HM Aðsend grein: Samkeppni og lífskjör Sala á regnfötum gengur vel „Þetta er einstök stytta“ Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Stúlkan er fundin heil á húfi Staðan verri áður en skýrslan var unnin Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Mest lesið Í gær Í vikunni Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Viðartittlingur kallar á nefndarálit Áttunda stækkunarlotan hjá ESB Stúlkan er fundin heil á húfi Ljótt að feta í sama farveg Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Skilin eftir sex ára hjónaband Þetta kosta miðar á úrslitaleik HM Aðsend grein: Samkeppni og lífskjör Sala á regnfötum gengur vel „Þetta er einstök stytta“ Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brottfallið litið alvarlegum augum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Stúlkan er fundin heil á húfi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Óeð