Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Að æra óstöðugan með hjali um vexti

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.3.2026 | 7:00 Að æra óstöðugan með hjali um vexti Vilhjálmur Bjarnason Mbl.is/María Matthíasdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Það eru mörg gáfumenni sem ryðjast fram á vellina til að ræða vexti af fjárskuldbindingum. Bestan aðgang að fjölmiðlum eiga félagsmenn í Blaðamannafélagi Íslands, en sá félagsskapur virðist stundum vera undirdeild í Landssambandi íslenskra vitleysinga. Vextir Áður en lengra er haldið er rétt að átta sig á eðli vaxta. Einföld skilgreining á vöxtum getur verið eftirfarandi: Vextir eru greiðsla sem tengist því að taka lán eða lána peninga. Almennt lánar annar aðilinn öðrum aðila fjárhæð, sem kallast lán. Móttakandi aðilinn á að endurgreiða upphafsupphæðina – sem kallast höfuðstóll – ásamt viðbótarupphæð. Þessi viðbótarupphæð kallast vextir. Rétt er að taka fram að engum ber skylda til að lána öðrum peninga. Þó er það lögbundin skylda launþega að leggja til hliðar hluta af launum sínum til þess að eiga fyrir lífeyri eftir að starfsaldri lýkur. Og með því að engum ber skylda til að lána, þá er enginn skyldugur til að taka lán til að flýta neyslu sinni. Kann að vera að einhverjir vilji láta undan löngunum sínum, en þá er gjaldið vextir. Þegar löggjafarvaldið hefur lagt þessa skyldu á launþega verður framkvæmdavaldið að vernda framlag launþega svo það haldi kaupmætti sínum þegar kemur að því að launþegar hefja töku lífeyris. Viðbótarfjárhæðin er greiðsla fyrir: Fórn fyrir frestun neyslu hjá lánveitanda. Álag vegna rýrnunar á verðgildi lánsfjárhæðar. Álag fyrir áhættu sem fylgir því að lántaki endurgreiði ekki lánið. Fjármálamarkaður er ekki hluti af félagslegu kerfi, nema ef vera skyldi þáttur lífeyrissjóða. Því er erfitt að tala um réttlæti á fjármálamarkaði. Ef húsnæðismál eru hluti af samningum á vinnumarkaði, þá gerist það ekki á kostnað lífeyrissjóða. Ef ríkisvaldið blandar sér í slíka samningagerð, þá er það á kostnað skattgreiðenda, enda hafa lífeyrissjóðir aðeins eina skyldu, að greiða lífeyri eftir að starfsaldri lýkur. Frjálst flæði fjármagns Með samningum um aðild að Evrópsku efnahagssvæði (EES) átti að fylgja frjálst flæði fjármagns. Með frjálsu flæði fjármagns átti að fylgja réttur til að taka lán í annarri mynt en heimamynt. Skipti þá engu hvort lántakinn bjó við náttúrlega vörn vegna breytinga á gengi gjaldmiðla. Lántaki tekur frjálsa og upplýsta ákvörðun um sín lán. Rétturinn til lántöku er tekinn til baka með „þjóðhagsvarúð“, þannig að íslenskir bankar veita einstaklingum ekki lán í erlendri mynt. Ríkissjóður Íslands hefur frelsi til lántöku í öllum myntum, en þjóðhagsvarúð ríkissjóðs heitir skattlagning. Ef rugludallur vill láta eftir löngun sinni og kaupa svissneskt úr í eðalmálmum af gerðinni ROLEX eða IWC, úr sem kosta í íslenskum krónum um 10 milljónir, sýnir viðkomandi þá ekki þjóðhagsvarúð með því að taka lánið í svissneskum frönkum? Úr í eðalmálmum halda verðgildi sínu í svissneskum frönkum. Þjóðhagsvarúðin af gjaldeyrisvarasjóði er lögð á sparifjáreigendur með því að bankar verða að eiga vaxtalausar innistæður í Seðlabankanum til að fjármagna gjaldeyrisvarasjóð þjóðarinnar. Í nafni þjóðhagsvarúðar. Seðlabanki Íslands á að annast eftirlit með fjármálafyrirtækjum og lífeyrissjóðum. Í því eftirliti felst einnig neytendavernd. Ritara finnst á stundum að eftirlitið sé meira með formsatriðum en vernd fyrir ásælni fjármálafyrirtækja til að tryggja lykilstarfsmönnum góð laun. Þar við bætist að ríkssjóður hirðir mestan hluta ávöxtunar af bankareikningum með óhóflegum sköttum á verðleiðréttingar, sem heita verðbætur vegna verðbólgu. Þar er engin neytendavernd. Það stóð til að banna veitufyrirtækjum í eigu sveitarfélaga að taka lán í erlendri mynt. Þegar fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur voru spurðir árið 2017 um tap eða ábata af erlendum lánum, kom í ljós að öll lán voru í ábata, nema eitt, þrátt fyrir böl og alheimsstríð á árunum á undan. Það lán var með langan líftíma. Tap eða ábati voru mæld í samanburði við innlent verðtryggt lán. Það er einnig í nafni þjóðhagsvarúðar að lífeyrissjóðir verða að eiga að 55% af eignum sínum, minnst, í innlendum eignum. Þessar eignir geta þeir alls ekki selt því allar hreyfingar á verðbréfamarkaði geta leitt til verðhruns. Landssamband íslenskra vitleysinga ber enga umhyggju fyrir lífeyrisþegum. Óþjóðleg fyrirtæki „án varúðar“ Það eru til fyrirtæki á Íslandi, sem verða að eiga mikið af lausu fé til að standa við skuldbindingar sínar í bráð og lengd. Icelandair þarf að tryggja það að geta veit farþegum, sem greitt hafa fyrir flug, þjónustu. Jafnframt þarf félagið að geta sýnt flugvélaleigum fram á að það geti greitt leigugjöld. Um síðustu áramót átti félagið sem næst USD 400 milljónir í lausu fé í þessum tilgangi. Landsvirkjun þarf að sýna lánveitendum fram á greiðslugetu sína með lausu fé. Um síðustu áramót átti Landsvirkjun sem næst USD 56 milljónir. Það er mikil áhætta fyrir þessi félög að eiga þessa fjármuni hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum. Þetta lausafé er, vegna þjóðhagsvarúðar, að mestu hjá erlendum fjármálafyrirtækjum. Þannig verða fyrirtækin óþjóðleg. Kaupfélög Nú er svo komið að íslensk smásöluverslun hefur færst í hendur hlutafélaga, sem eru að mestu í eigu lífeyrissjóða. Þegar verkalýðshreyfingin kvartar undan tvíkeppni Haga hf. og Festi hf. er nærtækast að líta í eigin barm því lífeyrissjóðum er stjórnað af fulltrúum vinnumarkaðarins. Það kann að vera að mestar kjarabætur felist í virkri samkeppni á smásölumarkaði. Svo er annað kaupfélag í eigu ríkisins. Það heitir ISAVIA og rekur flugstöð á Miðnesheiði. Þar er gjaldtaka mjög frjálsleg á bílastæðum. Tekið skal fram að íslenska ríkið hefur aldrei veitt fjármagni í byggingu flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Lán ríkisins voru tekin yfir af ISAVIA, með ábyrgð ríkisins, en greiðslur féllu aldrei á ríkið. Fyrirtæki með tæknilega einokun, eins og ISAVIA, skal verðleggja þjónustu sína miðað við kostnað en ekki miðað við hvar verðlagning byrjar að misbjóða viðskiptavinum. Samkeppnisstofnun er ágæt í að meta sósur. Samkeppni á að ríkja á matvælamarkaði og eðlileg verðlagning á ferðalögum skiptir mun meira máli fyrir lífskjör í landinu en sósur. Fundir um kjaradeilur og hersamkomur Á komandi vikum verður deilt um kjarabætur vegna styrjarldar í Íran. Þar mun orðbragðið á báða vegu verða með eftirfarandi hætti: „Og ég segi þig ljúga því aplafylið þitt, sem aldrei hefur verið nýtilegur til eins né neins alla þína ævi, og munt aldrei verða.“ Þegar samningar hafa náðst, meðal annars með aðstoð aurasmala verkalýðshreyfingarinnar, munu allir syngja: Þú vínviður hreini, ó eilífi eini, ég ein er sú greinin sem fest er við þig. Í gleði og harmi með himneskum armi, minn hjartkæri Jesú, þú umvefur mig. (HKL Salka Valka) Vilhjálmur Bjarnason var alþingismaður og er hagfræðingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Margir vegir lokaðir vegna ófærðar Undirskrift Trumps á 100 dollara seðlum Að æra óstöðugan með hjali um vexti Himinlifandi með sitt annað barn Trump frestar árásum á íranskar orkustöðvar Umræðan Hallarekstur stöðvaður Að æra óstöðugan með hjali um vexti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fólkaflokkurin sigraði í Færeyjum Björgunarsveitarmenn keyrðu á milli strætóskýla Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt „Þú ert alveg á réttri leið“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Minnihluti félaga í FA vill halda áfram viðræðum Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Bubbi spáir hruni Spotify Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Margir vegir lokaðir vegna ófærðar Undirskrift Trumps á 100 dollara seðlum Að æra óstöðugan með hjali um vexti Himinlifandi með sitt annað barn Trump frestar árásum á íranskar orkustöðvar Umræðan Hallarekstur stöðvaður Að æra óstöðugan með hjali um vexti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Farið að draga í skafla á þekktum stöðum Vond tíðindi en toppnum vonandi náð Geta ekki sagt „full og varanleg“ Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt „Þú ert alveg á réttri leið“ Stórfelld árleg hækkun gjalda Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Minnihluti félaga í FA vill halda

Share this article