Innlent | Morgunblaðið | 3.7.2026 | 7:56 Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Aðstæður í finnskum landbúnaði eru allt aðrar en á Íslandi, bæði af hálfu náttúrunnar og af mannavöldum. Og jarðarberjaakrarnir stærri! AFP/Alessandro Rampazzo Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Jón Gnarr segist ekki vera Evrópusinni Miklar launahækkanir og verðbólga fylgjast að ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Efna til ESB-rökræðna í ágúst: Eftirspurnin mikil Ekki um klofning innan hreyfingarinnar að ræða » Fleiri tengdar fréttir Erna Bjarnadóttir hagfræðingur segir óábyrgt að fullyrða að matvælaverð á Íslandi myndi lækka um 25-30% við inngöngu í Evrópusambandið (ESB), eins og Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar hefur haldið fram. Erna var annar aðalhöfunda skýrslu utanríkisráðuneytisins um íslenskan landbúnað í alþjóðlegu umhverfi og telur að reynsla Finna og Svía verði ekki yfirfærð með einföldum hætti á Ísland. Hins vegar myndi afurðaverð til íslenskra bænda að líkindum lækka um 40-50%. Er hægt að segja með sæmilegri vissu hver áhrif ESB-aðildar á matvælaverð gætu orðið? „Það er a.m.k. algjörlega óábyrgt að fullyrða að matvælaverð myndi lækka um 25-30%. Tollvernduðu vörurnar eru um 40% matarkörfunnar, að drykkjarvöru undanskilinni. Sá sem fullyrðir að matarkarfan muni lækka um 25% er því í raun að segja að þær vörur sem njóta tollverndar muni lækka um meira en helming, þar sem tollfrjálsa varan lækkar auðvitað ekkert við afnám tollverndar. Ég tel algjörlega óábyrgt að halda því fram að innfluttar mjólkurvörur og ostar geti lækkað svo mikið í verði við það eitt að verða fluttar inn. Það stenst enga skoðun.“ En hvað segir reynsla Finna og Svía á síðustu öld okkur? „Ég tel að ekki sé hægt að draga einhlítar ályktanir af því sem gerðist við inngöngu þeirra árið 1995. Og aðstæður ólíkar í löndunum tveimur. Í Svíþjóð var mikið búið að lækka tolla og draga úr stuðningi við landbúnað. Sumir bændur fengu jafnvel meiri styrki eftir inngöngu. Verðlækkunin þar við aðildina er talin hafa verið 1-2%, það var nú allt og sumt. Í finnskum skýrslum er talað um 10-11% lækkun, en Finnar höfðu lagt tolla á miklu fleiri vörunúmer en gert er á Íslandi í dag og beinn stuðningur við bændur var einnig til staðar. Hér tók viðskiptasamningur við ESB gildi 2018 og matvara, önnur en mjólkur- og kjötvörur, því meira og minna tollfrjáls nú þegar. Aðstæður eru því fjarri því sambærilegar og nánast ógerlegt að áætla áhrifin fyrir fram. Lækkunin gæti orðið einhver, en varla jafnmikil og í Finnlandi.“ Gæti verðið þó ekki lækkað talsvert á sumri matvöru? „Kannski, en ég get ekki fullyrt að lækkunin myndi öll skila sér til neytenda. Enginn veit hvaða áhrif það hefði á ferskvörumarkað að flytja inn meira af kjöti eða eggjum, hver rýrnunin yrði eða hver álagning verslana yrði, með alla virðiskeðjuna í höndum sér, í stað þess að kaupa af íslenskum bændum í gegnum afurðastöðvar.“ En afurðaverð til bænda lækkaði um 40-50% við inngöngu Finna og Svía. Yrði raunin sú sama hér? „Já, ég tel hiklaust að afurðaverð til bænda myndi lækka verulega, einkum á þeim afurðum þar sem tollvernd vegur hvað þyngst.“ Hvaða mælikvarði er réttastur til að meta möguleg áhrif ESB-aðildar á matvöruverð? „Hlutfallslegt verðlag matvæla, held ég. Það er opinber grundvöllur verðsamanburðar í Evrópu og byggist á stöðluðum aðferðum hagstofa. Vörurnar í körfunum þurfa ekki alltaf að vera nákvæmlega þær sömu, en aðferðirnar eru sambærilegar og þróunin er mæld yfir tíma. Um leið og farið er inn á þann völl sem Pawel hefur verið að leika sér á – að bera saman einstakar vörur – vitum við ekki hvort verið er að bera saman sams konar verslanir eða sambærilega vöru. Síðan þarf einnig að líta til kaupmáttar og þess hve þungt útgjöld til matvælakaupa vega í heildarútgjöldum. Að því leyti eru Íslendingar betur settir en íbúar ESB að meðaltali hvað matvöru varðar.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Jón Gnarr segist ekki vera Evrópusinni Miklar launahækkanir og verðbólga fylgjast að ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Efna til ESB-rökræðna í ágúst: Eftirspurnin mikil Ekki um klofning innan hreyfingarinnar að ræða » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Nagelsmann sagði upp og Klopp sagður líklegur „Getum svo sannarlega unnið Bretland“ Kveikti í sér fyrir utan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna Öflugur skjálfti í Indónesíu Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skipulagði innflutninginn í gegnum Signal Krefja olíufélögin skýringa á verðhækkunum Ákveðnar upplýsingar komu lögreglu á sporið Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Vissi ekki að nafn sitt hefði verið birt Hætt við þéttingu í Grafarvogi Prjónarar landsins sýna samstöðu í verki Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Andlát: Björn Ólafs Myndskeið: Gæslan sótti veikan mann Grænhöfðeyingar standa saman Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Nýjast á mbl.is » Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Nagelsmann sagði upp og Klopp sagður líklegur „Getum svo sannarlega unnið Bretland“ Kveikti í sér fyrir utan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna Öflugur skjálfti í Indónesíu Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Krefja olíufélögin skýringa á verðhækkunum Skúraveður með hagléljum og eldingu Hætt við þéttingu í Grafarvogi Skipulagði innflutninginn í gegnum Signal Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti Vissi ekki að nafn sitt hefði verið birt Hætt við þéttingu í Grafarvogi Prjónarar landsins sýna samstöðu í verki Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Andlát: Björn Ólafs Myndskeið: Gæslan sótti veikan mann Grænhöfðeyingar standa saman Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið