Innlent | mbl | 7.7.2026 | 23:50 Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Um átta hundruð manns mættu á stofnfund hreyfingarinnar „Áfram Ísland.“ mbl.is/Karítas Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Stofnfundur hreyfingarinnar „Áfram Ísland“ var haldinn í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll í gær. Þar kom saman fólk á öllum aldri sem leggst gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Að loknum fundinum ræddi blaðamaður mbl .is við nokkra unga fundargesti og fékk að heyra hvernig hefði verið á fundinum og hvað skipti þá máli þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Ræðumenn fundarins voru Björn Zoëga læknir, Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður og Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands. Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur stýrði fundinum og setti hann með ávarpi. Jakob Lars Kristmannsson stærðfræðinemi. mbl.is/Karítas Stærðfræðineminn ánægður með fundinn Jakob Lars Kristmannsson, stærðfræðinemi við Háskóla Íslands, var ánægður með fundinn. „Mér leist bara frábærlega á þetta, þetta var geggjaður fundur og Ólafur Ragnar auðvitað frábær eins og alltaf,“ sagði Jakob við mbl.is. Hann segir engan berjast betur fyrir hagsmunum Íslands en Íslendingar sjálfir. „Það mun enginn embættismaður í Brussel hafa þetta að leiðarljósi.“ Gunnhildur Sigurbjörnsdóttir laganemi, Unnur Björnsdóttir hagfræðinemi og Andrea Alda Björnsdóttir tannlæknir. mbl.is/Karítas Fundurinn á jákvæðum nótum Gunnhildur Sigurbjörnsdóttir, Unnur Björnsdóttir og Andrea Alda Björnsdóttir stóðu hressar í mannfjöldanum úti á Austurvelli, fyrir utan Sjálfstæðissalinn, eftir fundinn. Þær voru ánægðar með að fundurinn hafi verið á jákvæðum nótum. „Og hann minnir mann á hvað þetta er í raun mikilvæg kosning,“ sagði Gunnhildur. Er okkur betur borgið utan Evrópusambandsins? „Mér finnst aðallega mikilvægt að við höfum allan ákvörðunarrétt sem við kemur okkar landi og að vera ekki að afsala því til einhverra annarra,“ sagði Andrea, en hún er tannlæknir. Gunnhildur, sem er laganemi við Háskóla Íslands, og Unnur, sem stundar hagfræðinám við Háskólann í Reykjavík, tóku undir þau orð vinkonu sinnar. Jóhann Árni Sigmarsson, Fannar Logi Valdorf Sigurðsson og Dagur Björgvin Jónsson. mbl.is/Karítas Er bjartsýnn á niðurstöðuna „nei“ Vinirnir Jóhann Árni Sigmarsson, Fannar Logi Valdorf Sigurðsson og Dagur Björgvin Jónsson voru einnig hressir eftir fundinn. „Mér leist rosalega vel á hann, flottir ræðumenn og allt mjög skýrt,“ sagði Jóhann Árni. „Maður finnur líka bara svolítið eldmóðinn fyrir því hversu heit umræða þetta er að fara að vera,“ sagði Fannar Logi og bætti við að hann væri bjartsýnn á niðurstöðuna „nei.“ Jóhann Árni er flugnemi, Fannar Logi er að byrja í laganámi við Háskóla Íslands og Dagur Björgvin stundar nám við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ. Guðrún Lilja Zoëga fjármálaverkfræðingur og Sigurbjörn Zoëga viðskiptafræðinemi. mbl.is/Karítas „Skiptir ekki máli hvort þú ert ungur eða gamall“ Guðrún Lilja Zoëga fjármálaverkfræðingur og Sigurbjörn Zoëga viðskiptafræðinemi við Háskóla Íslands sögðu stemninguna á fundinum hafa verið góða. „Geggjuð stemning og vel tekið undir,“ sagði Guðrún Lilja. „Já, mér leist sjúklega vel á þetta. Ótrúlega mikil stemning og ótrúlega mikið af fólki. Gaman að sjá það, það var bara röð út,“ sagði Sigurbjörn. Fyrir þeim skiptir sjálfstæði Íslands mestu máli og sögðu þau það skipta máli fyrir fólk á öllum aldri. „Það skiptir ekki máli hvort þú ert ungur eða gamall,“ sagði Sigurbjörn. Halldór Benjamín Þorbergsson var fundarstjóri. mbl.is/Karítas Fylgst var með fundinum úr þremur sölum vegna fjölda. mbl.is/Karítas Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður flutti ræðu á fundinum. mbl.is/Karítas mbl.is/Karítas Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Setur upp grímu og verður ný persóna Svona líta átta liða úrslitin á HM út Svisslendingar í átta liða úrslit eftir vítakeppni Pamela Anderson í skýjunum yfir nýgiftum syni sínum Umræðan Íbúðakaup í Evrulandi Mætti ekki setja lög andstæð regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vettvangsvinnu lokið í Suðursveit Útgjöld til varnarmála nálgast 4% Flóknara mál en gospellag um bjór Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Mest lesið Í gær Í vikunni Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Krefst uppsagnar leigusamnings Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Lögreglumenn hugsi yfir vændiskonunum Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Keypti símanúmer á nokkrar milljónir á „leynistað“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Nýjast á mbl.is » Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Setur upp grímu og verður ný persóna Svona líta átta liða úrslitin á HM út Svisslendingar í átta liða úrslit eftir vítakeppni Pamela Anderson í skýjunum yfir nýgiftum syni sínum Umræðan Íbúðakaup í Evrulandi Mætti ekki setja lög andstæð regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Íslensk börn verr sett en evrópsk Bindur vonir við fundinn í Ankara Leyfa framkvæmdir í trássi við eigendur Mest lesið Í gær Í vikunni Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Krefst uppsagnar leigusamnings Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Lögreglumenn hugsi yfir vændiskonunum Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Keypti símanúmer á nokkrar milljónir á „leynistað“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu