Hreyfingin Áfram Ísland, sem telur hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins, heldur opinn fund á Sviðinu á Selfossi sem hefst kl. 17:00. Nálgast má streymi af fundinum hér að neðan. Ræðumenn á fundinum verða Ræðumenn á fundinum verða Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, Bjarni Harðarson, bókaútgefandi og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, Margrét Hrund Arnarsdóttir, bóndi og framkvæmdastjóri Hreppamjólkur, og Oddný Steina Valsdóttir, bóndi og ráðunautur. Sefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins, verður fundarstjóri. Þetta er þriðji fundur hreyfingarinnar sem var stofnuð í sumar. Á fyrsta fundi Áfram Ísland, sem fór fram í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll 6. júlí sl., var Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, meðal ræðumanna. Á öðrum fundi hreyfingarinnar gerði Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, grein fyrir skoðun sinni að það sé ekki í þágu Íslands að framtíðarhagsmunir landsins ráðist í Brussel.