Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ólafur Ragnar og áfram Ísland

Read Full Article →

Samtökin Áfram Ísland voru ­stofnuð í vikunni á vel sóttum fundi þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti lýðveldisins og okkar fremsti áhugamaður um þjóðaratkvæðagreiðslur, var lykilræðumaður. Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Heima var fundarstjóri og hafa nú um fjögur þúsund manns skráð sig í hreyfinguna. Allt þetta fólk spannar hið pólitíska litróf en er sammála um að Íslendingum muni farnast best með því að stjórna eigin ­málum. Screenshot 2026-07-07 at 17.38.56 Hröfnunum þykir þetta til marks um að hið raunverulega sameiningartákn þjóðarinnar sé Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, en álíka samstöðu hefur ekki orðið vart meðal þjóðarinnar frá því að Búbbi – Jóhannes ­Eðvaldsson – skoraði með hjólhestaspyrnu á móti Austur-Þjóðverjum 1975. Huginn og Muninn er einn af ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 8. júlíu 2026.

Share this article