Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sundlaugagarður í Laugardalnum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.7.2026 | 11:34 Sundlaugagarður í Laugardalnum Þakið á Laugum er í forgrunni myndarinnar, vatnagarður fyrir miðju og á bak við hann hótel. Þá er búið að teikna potta og gufur. Hugmyndin hefur ekki verið fullunnin en hún sýnir hvernig hægt væri að endurnýja svæðið. Mikill vöxtur ferðaþjónustu skapar grundvöll fyrir hærra þjónustustig. Teikningar/ONNO Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Björn Leifsson, stofnandi og einn eigenda World Class, segir fyrirhugað niðurrif á hluta áhorfendastúkunnar við Laugardalslaug skapa tækifæri til að endurskipuleggja umhverfi laugarinnar. Tilefnið er að fimm pottum sunnan stúkunnar hefur verið lokað vegna alkalí- og tæringarskemmda í steypu og burðarvirki. Sömuleiðis hefur gufubaðinu undir stúkunni verið lokað. Af þessum sökum er verið að undirbúa niðurrif á hluta stúkunnar. Björn, sem opnaði Laugar árið 2004, kom snemma auga á tækifæri til að nýta laugarsvæðið betur. Lét hann því vinna hugmynd árið 2007 að endurgerð svæðisins sem hér er dustað rykið af. „Ég fékk þessa hugmynd af því að ég sá möguleika til að lífga enn frekar upp á svæðið.“ Teiknað af ONNO Hver var arkitektinn? „Ari Már Lúðvíksson arkitekt teiknaði Laugar en þessi hugmynd var unnin af Þórði Magnússyni hjá ONNO, út frá mínum hugmyndum, og þetta var uppkast til að geta kynnt hugmyndina fyrir borgarstjórn ef hún skyldi hafa áhuga á að gera eitthvað. Dagur B. Eggertsson, sem var reyndar borgarfulltrúi þá, skaut þessu hins vegar strax út af borðinu, sagði orðrétt „að þetta yrði aldrei leyft meðan hann væri í borgarstjórn“. Svo sagði Dagur aftur nei sem borgarstjóri þegar hann tók skóflustunguna [að nýrri World Class-stöð við sundlaugina] í Breiðholti fyrir um áratug. Þá spurði ég hann hvenær ég fengi að byggja upp sundlaugagarðinn í Laugardal og þá svaraði hann á sama hátt og áður.“ Glerhvelfing Geturðu lýst hugmyndinni? „Hugmyndin var að loka hringnum í kringum laugina og byggja hótel og aðra þjónustu til að lífga upp á svæðið og gera það meira aðlaðandi. Jafnframt lét ég teikna 240 fermetra glerhvolf yfir skemmtisvæði fyrir börn og ungmenni, sem væri eins og eyja í lauginni með öldulaug, rennibrautum og minni laugum. Þar gæti verið 30 stiga hiti allt árið, þannig að það væri alltaf barnaskari að skemmta sér þarna. Horft yfir sundlaugasvæðið eins og það gæti litið út með nýbyggingum. Sjá má hluta af húsi Lauga í vinstra horninu uppi. Þar á bak við vesturstúku Laugardalsvallar. Svo voru í gamni settir pottar og gufur hingað og þangað en þetta var ekki endanleg hugmynd, heldur til að sýna hvað hægt væri að gera. Þegar ég skoða þessar hugmyndir í dag myndi ég bæta við L-laga byggingu þar sem útiskýlin eru, þannig að það væri hægt að endurnýja alla starfsemi fyrir starfsmenn í lauginni, bæði búningsklefa og alla aðstöðu sem þarf við svona mannvirki.“ Hvað var gert ráð fyrir mörgum herbergjum á hótelinu? „Mig minnir að gert hafi verið ráð fyrir 150 herbergjum.“ Pottar og gufur Myndi starfsemi hótelsins ná niður á jarðhæðina þar sem gufubaðið er núna? „Það væri útfærsluatriði. Ef við myndum byggja L-laga byggingu við hótelið, þar sem útiskýlin eru í dag, þá værum við líka komin með skjól fyrir norðan- og austanáttinni á laugarsvæðinu. Í þeirri viðbyggingu gætum við verið með alla þessa starfsemi sem er nú á jarðhæð undir stúkunni og það væri vel hægt að útbúa bílakjallara undir hótelinu, það ætti ekki að trufla umhverfið. Horft til norðurs frá Laugum á vatnagarðinn. Teiknaðar hafa verið nokkrar rennibrautir undir glerhvolfi en hugmyndin er að sundlaugagarðurinn yrði opinn allt árið. Ég hef gaman af að kasta þessu fram af því að þetta var gert 2007 og á aftur erindi, og ef nýkjörinn borgarstjóri hefur áhuga á að ræða þessa hugmynd við mig og þróa hana áfram er ég mjög til í það.“ Sérðu líka fyrir þér að stækka líkamsræktarstöðina Laugar? „Nei. Nýbyggingin næst Laugum var hugsuð sem handboltavöllur og næst átti að koma bygging sem myndi hýsa læknastofur og fleira en þær hugmyndir voru barn síns tíma.“ Vantar vatnagarð Þjónustukrafan hefur aukist á þessari öld, samhliða uppbyggingu ykkar hjá World Class, Hreyfingu, Bláa lóninu, Sky Lagoon og fleiri aðilum. Hefur tíminn unnið með hugmyndinni? „Já, það má segja það. Það er algjör synd, með allt þetta heita vatn hér á Íslandi, að það skuli ekki vera vatnagarður fyrir börn og ungmenni neins staðar á Íslandi. Með þessari uppbyggingu gætum við náð þessu öllu á einn og sama staðinn. Horft yfir svæðið úr lofti. Hótelið er lengst til hægri. Nýbyggingarnar vinstra megin við hótelið eru sagðar myndu skapa skjól. Varðandi hótelbygginguna þá er hún teiknuð með öxlum út og líkist því kannski Esjunni. Það gætu verið svalir á flestum herbergjum sem snúa að lauginni en hin herbergin, norðanmegin, hefðu útsýni að Esjunni. Þannig að þetta er gríðarlega skemmtileg hugmynd að mínu mati.“ Sérðu fyrir þér að tilkoma hótels myndi gera kleift að bjóða upp á meiri þjónustu? Bættu við útiaðstöðu „Já. Við erum náttúrulega með spa niðri í Laugum og erum búin að bæta við nýrri útiaðstöðu fyrir gesti baðstofunnar. Það væri hægt að prjóna enn meira við það en það væri auðvitað gaman að geta gert það í samstarfi við borgina og útvíkka með því alla þjónustu.“ Björn Leifsson Þannig að gestir gætu verið allan daginn á svæðinu og til dæmis fengið sér fínt að borða á hótelinu? „Það væri draumurinn.“ Lá fyrir kostnaðaráætlun um þetta á sínum tíma? „Nei, þetta var gert til þess að sjá hvort það væri áhugi á að ræða þetta áfram, sem var ekki á þeim tíma. Ég vonast til að Hildur [Björnsdóttir borgarstjóri] taki jákvætt í þetta núna.“ Telurðu að hótelkeðjurnar myndu sýna þessu áhuga? „Já. Þegar ég kynnti þessa hugmynd árið 2007 var Hótel Esja eina hótelið í nágrenninu. Þannig að þetta hefði smellpassað inn í þá uppbyggingu á hótelum sem svo fór í hönd og gerir það reyndar enn af því að svæðið er orðið svo miðsvæðis í borginni. Og íþróttasvæðin öll í kring. Þetta er gríðarlega skemmtilegt svæði, það þarf bara að gera eitthvað af viti úr því,“ segir Björn Leifsson að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Síldarstakkar Bubba seldust upp á augabragði Sundlaugagarður í Laugardalnum Kótelettan: „Ætlum að sýna gestum hvernig heilt lamb er úrbeinað“ Harry Kane hrósaði Trump Brúin yfir Breiðholtsbraut opnuð Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sundlaugagarður í Laugardalnum Segir að Íran verði útrýmt ef hann verður drepinn Fyrrverandi ráðherra myrtur á heimili sínu Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf Mest lesið Í gær Í vikunni Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Gyðingar opna hús í miðbænum Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Tökum á stórmyndinni frestað Moldin kom frá KR-vellinum Myndir: Eiki Hauks og Sigga Beinteins stálu senunni Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Nýjast á mbl.is » Síldarstakkar Bubba seldust upp á augabragði Sundlaugagarður í Laugardalnum Kótelettan: „Ætlum að sýna gestum hvernig heilt lamb er úrbeinað“ Harry Kane hrósaði Trump Brúin yfir Breiðholtsbraut opnuð Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Evrópu vaxandi vandi á höndum Ísland græði ekkert á aðild að ESB „Það er erfitt að sjá þetta“ Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Mest lesið Í gær Í vikunni Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Gyðingar opna hús í miðbænum Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Tökum á stórmyndinni frestað Moldin kom frá KR-vellinum Myndir: Eiki Hauks og Sigga Beinteins stálu senunni Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Mynds

Share this article