Glænýr Mazda CX-6e verður frumsýndur fljótlega hjá Brimborg. Um er að ræða rúmgóðan og vel búinn rafbíl sem sameinar sportlega hönnun Mazda og notendavæna tækni. 79 kW rafhlaðan færir bílnum allt að 484 km drægni og 258 hestöfl. Hröðunin úr kyrrstöðu í hundrað er 7,9 sekúndur og hámarkshraðinn er 185 km/klst. Mazda CX-6e býður meðal annars upp á mjög stóran 26 tommu 5K snertiskjá, framrúðuskjá, 360° myndavél og háþróað öryggiskerfi. Í Takumi Plus-útfærslu Mazda CX-6e bætast meðal annars við stafrænir hliðarspeglar og stafrænn baksýnisspegill. Farangursrýmið er 468 lítrar, auk 80 lítra geymslurýmis að framan, og dráttargetan er allt að 1.500 kg. Mazda CX-6e verður fáanlegur í Takumi- og Takumi Plus-útfærslum.