Amaroq og meðeigandi sinn að dótturfélaginu Gardaq, GCAM LP, hafa náð samkomulagi um að leggja fyrirtækinu til 9,5 milljónir kanadískra dala, eða sem nemur ríflega 840 milljónum króna, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Gardaq sinnir verkefnum tengdum frumrannsóknum. Félagið heldur m.a. á Nunarsuit-leyfinu á Suður-Grænlandi. Amaroq tilkynnti í lok júní að byrjað væri að bora á Ilua Pegmatite rannsóknarsvæðinu innan Nunarsuit-leyfisins. Jafnframt heldur Gardaq á leyfum innan Minturn-svæðisins, sem staðsett er norðan við Pituffik-geimherstöð Bandaríkjanna á norðvesturhluta Grænlands. Amaroq tilkynnti í janúar sl. um jákvæðar niðurstöður á Mimturn-svæðinu, sem félagið sagði gefa til kynna að um væri að ræða umfangsmikið, málmríkt svæði með víðtækri járnoxíð-ummyndun og brotamyndun. GCAM, sem heyrir undir fjárfestingarfélagið ACAM LP, fjárfesti í Gardaq fyrir 18 milljónir punda árið 2023 og eignaðist við það 49% hlut í félaginu á móti Amaroq. Amaroq og GCAM hafa nú náð samkomulagi um nýja fjármögnun fyrir Gafdaq fyrir rannsóknarverkefni á árunum í ár og á næsta ári, einkum er varðar Ilua og Minturn verkefnin. GCAM mun leggja Gardaq til 4,7 milljónir kanadískra dala, eða tæplega 420 milljónir króna. Amaroq mun fyrsta um sinn leggja dótturfyrirtækinu til 1,8 milljónir kanadískra dala, eða um 160 milljónir króna, og hefur auk þess skuldbundið sig til frekara framlags upp á 3,0 milljónir kanadískra dala eða rúmlega 260 milljónir króna í formi rekstrarkostnaðar. Eignarhald Gardaq mun því haldast óbreytt.