Hlutabréf Amaroq Minerals hækka um 5% í viðskiptum dagsins og stendur gengi félagsins í 196 krónum þegar þetta er skrifað. Viðskipti með bréf félagsins nema um 215 milljónum króna í dag. Amaroq birti afkomuspá fyrir opnun markaða og virðist hún hafa stutt við viðbrögð fjárfesta. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í liðinni viku hafa verið töluverðar sveiflur á gengi Amaroq það sem af er ári. Hlutabréfið stóð í 182 krónum í ársbyrjun og var félagið jafnframt það eftirsóttasta í Kauphöllinni í janúar. Flest viðskipti voru með bréf Amaroq í mánuðinum, alls 1.952 viðskipti, og heildarvelta nam 9,4 milljörðum króna. Gengið fór í 244 krónur á hlut þann 29. janúar, sem var hæsta gengi í sögu félagsins og jafngilti um 34% hækkun frá ársbyrjun. Í framhaldi lækkaði bréfið niður í 170 krónur um miðjan febrúar, en hefur síðan þá tekið við sér á ný. Í nýbirtum framleiðslumarkmiðum árið áætlar Amaroq að gullframleiðsla úr Nalunaq-námunni verði 25–35 þúsund únsur. Til samanburðar nam gullframleiðsla félagsins í fyrra um 6.600 únsum. „Gert er ráð fyrir að framleiðsla og sala aukist á seinni hluta ársins þegar 2. áfangi flotaðskilnaðar verður að fullu kominn í rekstur. Framleiðsla á fyrri helmingi ársins er áætluð 7–10 þúsund únsur,“ segir í tilkynningu Amaroq til Kauphallarinnar. Sjá einnig Allt að fimmfalda gullframleiðslu milli ára Heimsmarkaðsverð gulls er í kringum 5.180 dali á únsu í dag. Miðað við það verð nemur mögulegt andvirði áætlaðrar framleiðslu á árinu um 129–181 milljón dollara, eða um 15–22 milljörðum króna, eftir því hvar framleiðslan lendir innan spár. Félagið segir að markmiðið byggi meðal annars á áætluðum styrkleika gulls í berginu, gangsetningu annars áfanga vinnslunnar á öðrum ársfjórðungi, áætluðum viðhaldsstöðvunum og mögulegum ófyrirséðum aðstæðum. Endurheimtuhlutfall í fyrsta áfanga er áætlað um 60%, en gert er ráð fyrir að það hækki í 90–95% eftir gangsetningu annars áfanga. Þá gerir félagið ráð fyrir að styrkleiki gulls (head grade) verði að jafnaði 14–15 g/t, með eðlilegum sveiflum yfir árið eftir því hvaða hlutar Mountain Block-æðarinnar fara í gegnum vinnsluna. Rekstrarkostnaður Nalunaq (cash costs) er áætlaður 44–47 milljónir dala, en rekstrarkostnaður með viðhaldsfjárfestingum (AISC) 69–73 milljónir dala.