Sigurbjörn Þorkelsson tekur við stjórnarformennsku hjá Amaroq Minerals þegar hlutabréf félagsins verða tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinnar í London. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Graham Stewart, sem hefur verið stjórnarformaður Amaroq síðustu sjö ár, lætur þá af formennsku en verður áfram í stjórn félagsins sem óháður stjórnarmaður. Félagið segir það tryggja samfellu og áframhaldandi aðkomu hans að stefnumótun og þróun Amaroq. Breytingarnar taka gildi þegar hlutabréf Amaroq verða tekin til viðskipta á aðalmarkaði London Stock Exchange og í svokölluðum ESCC-flokki breska fjármálaeftirlitsins. Félagið gerir ráð fyrir að það gerist ekki fyrr en í fyrsta lagi 31. júlí. Sigurbjörn Þorkelsson tekur við stjórnarformennsku hjá Amaroq. Minerals Amaroq er nú skráð á AIM-markaðinn í London, Nasdaq Iceland og OTCQX-markaðinn í Bandaríkjunum. Flutningur á aðalmarkað í London hefur verið hluti af áformum félagsins um að styrkja stöðu sína gagnvart alþjóðlegum fjárfestum. Þrír nýir stjórnarmenn Samhliða breytingunum bætast þrír nýir óháðir stjórnarmenn við stjórn Amaroq. Það eru Annette Brøndholt, Jorunn Johanne Sætre og Teitur Poulsen. Sætre verður jafnframt svokallaður senior independent director, eða helsti óháði stjórnarmaður félagsins. David Neuhauser, sem hefur verið í stjórn Amaroq frá júní 2021, lætur af stjórnarsetu frá og með 21. júlí. Hann var ekki óháður stjórnarmaður. Í tilkynningu Amaroq kemur fram að félagið geri ráð fyrir að Neuhauser muni áfram styðja félagið og dótturfélög þess sem ráðgjafi. Stewart segir í tilkynningunni að nýju stjórnarmennirnir bæti við víðtækri reynslu af námuvinnslu, fjármálum, orku, stjórnarháttum og alþjóðlegum rekstri. Sú reynsla muni nýtast félaginu þegar það færist á aðalmarkað Kauphallarinnar í London og heldur áfram að vinna að uppbyggingu sinni á Grænlandi. Hann þakkar jafnframt Neuhauser fyrir störf hans í þágu félagsins og segir stuðning hans hafa verið einn af hornsteinum þess sem Amaroq sé orðið í dag. „Ég er einnig mjög ánægður með að tilkynna að Siggi taki við af mér sem stjórnarformaður þegar félagið færist á aðalmarkað Kauphallarinnar í London. Eftir sjö ár sem stjórnarformaður er rétti tíminn kominn til að stíga til hliðar og ég hlakka til að starfa áfram fyrir félagið sem stjórnarmaður,“ segir Stewart. Mikilvægt skeið í þróun félagsins Sigurbjörn Þorkelsson segir það heiður að taka við stjórnarformennsku á svo mikilvægu skeiði í þróun Amaroq. „Graham hefur veitt félaginu framúrskarandi forystu og sýnt mikla skuldbindingu sem stjórnarformaður. Hann hefur átt stóran þátt í að byggja upp sterkan grunn og skýra stefnu félagsins,“ segir Sigurbjörn í tilkynningu. Hann segist hlakka til að starfa með nýjum stjórnarmönnum, stjórninni í heild og stjórnendum félagsins við að styðja áframhaldandi vöxt og áform Amaroq á Grænlandi. Annette Brøndholt hefur meira en 25 ára reynslu af alþjóðlegri stjórnun, meðal annars í flugi, ferðaþjónustu, tísku, tækni og fjárfestingum. Hún hefur gegnt stjórnendastöðum hjá SAS og By Malene Birger og sinnt stjórnarformennsku og stjórnarstörfum hjá skráðum félögum, einkafyrirtækjum, fjölskyldufyrirtækjum og opinberum aðilum. Jorunn Johanne Sætre hefur meira en 40 ára reynslu úr orkugeiranum. Hún starfaði lengi hjá Halliburton, meðal annars sem framkvæmdastjóri félagsins á Norðurlöndum og í stjórnendastöðum í Bandaríkjunum. Hún hefur einnig setið í stjórnum skráðra og óskráðra félaga, meðal annars Longboat Energy og Faroe Petroleum, auk þess að hafa setið í fulltrúaráði Norsk Hydro. Teitur Poulsen hefur meira en 20 ára reynslu af námuvinnslu, orku, fyrirtækjafjármögnun, stefnumótun, samrunum og yfirtökum og fjármagnsmörkuðum. Hann er nú fjármálastjóri Lundin Mining Corporation. Áður var hann fjármálastjóri Lundin Energy og þar áður fjármálastjóri Aker BP. Amaroq vinnur að leit, þróun og uppbyggingu gull- og málmverkefna á Suður-Grænlandi. Helsta eign félagsins er Nalunaq-gullnáman, en félagið á einnig eignasafn gull- og málmverkefna á svæðinu, meðal annars tengt kopar, nikkel, sjaldgæfum jarðefnum og öðrum stefnumarkandi málmum.