Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Amaroq skilar hagnaði í fyrsta sinn

Read Full Article →

Málmleitarfélagið Amaroq hagnaðist um rúmlega 2,4 milljónir kanadískra dala eða um 221 milljón króna á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við tap upp á 4,4 milljónir kanadískra dala á sama tímabili í fyrra. Þetta er í fyrsta sinn sem félagið skilar hagnaði á einum ársfjórðungi. Amaroq, sem heldur á víðtækum rannsóknar- og vinnsluheimildum á Grænlandi, birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung í morgun. Tekjur Amaroq á fjórðungnum námu tæplega 19 milljónum kanadískra dala, eða sem nemur 1,7 milljörðum króna. Til samanburðar var félagið ekki byrjað að afla sér tekna á sama tímabili í fyrra en félagið hóf að flytja út og selja gull á öðrum ársfjórðungi 2025. Fyrsta steypa Amaroq á gulli fór fram í lok nóvember 2024. Framlegð félagsins nam 9,9 milljónum kanadískra dala eða um 892 milljónir króna. Rekstrarhagnaður félagsins nam tæplega 2,7 milljónum kanadískra dala eða um 240 milljónum króna. „Ég er afar ánægður með rekstrarniðurstöður fyrsta ársfjórðungs 2026, sem voru í samræmi við þær rekstraráætlanir sem við kynntum í febrúar,“ segir Eldur Ólafsson , forstjóri Amaroq. „Rekstur og námuvinnsla í Nalunaq gekk vel, þar sem hlutfall gulls í hverju tonni (e. grade) og endurheimtur voru í takt við væntingar. Gangsetningu fyrsta áfanga vinnslunnar í Nalunaq er nú lokið og jukust afköst vinnslunnar jafnt og þétt yfir fjórðunginn. Jafnframt tókst okkur vel að takast á við krefjandi veðuraðstæður á fjórðungnum án þess að þær hefðu teljandi áhrif á vaktaskipti og starfsemi í Nalunaq.“ Eldur segir félagið gera ráð fyrir því að gullframleiðsla á fyrri helmingi ársins verði á bilinu 7–10 þúsund únsur og á bilinu 25-35 þúsund únsur í árslok, í samræmi við áður tilkynnt framleiðslumarkmið ársins. „Ég hlakka jafnframt til að hefja rannsóknarverkefni ársins, en í júní hefjast rannsóknir á Ilua-svæðinu sem hefur að geyma sjaldgæfa jarðmálma (Rear Earth Element).“ Fjárfestadagur í London í dag Amaroq mun halda fjárfestadag í London í dag þar sem starfsemi félagsins, vaxtaráform til næstu fimm ára og þau tækifæri sem fram undan eru verða kynnt fyrir fjárfestum. „Þar munum við einnig fara nánar yfir Nalunaq-námuna og þá möguleika sem þar liggja í frekari auðlinda- og framleiðsluaukningu. Árið 2026 hefur hafist af krafti og ég hlakka til að færa markaðnum frekari upplýsingar um framvindu rekstrarins eftir því sem líður á árið,“ segir Eldur.

Share this article