Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

VW færir niður söluspá og gerir nú ráð fyrir samdrætti

Read Full Article →

Þýski bílaframleiðandinn Volkswagen hefur fært niður horfur um sölu og afhendingu bíla í ár. Félagið gerir nú ráð fyrir að sala í ár verði á bilinu 0-3% lægri en í fyrra, en til samanburðar gerði fyrri spá ráð fyrir 0-3% söluvexti. Félagið rakti niðurfærslu spárinnar til mikils samdráttar á kínverska markaðnum. Oliver Blume, forstjóri Volkswagen, sagði að almennt hafi félagið afhent fleiri bíla í ár en i fyrra, að kínverska markaðnum undanskildum þar sem afhendingar drógust saman um 20%. Í ljósi þessa gerir félagið nú ráð fyrir að afhendingar dragist saman um 3-7% milli ára. Áður hafði félagið gert ráð fyrir að fjöldi afhentra bíla myndi standa í stað milli ára. Volkswagen gerir þó áfram ráð fyrir að framlegð verði á bilinu 4-5,5% á þessu ári, samanborið við 2,8% árið 2025 Fjármála- og rekstrarstjóri þýska bílarisans lagði áherslu á að félagið þurfi áfram að vinna að því að lækka kostnaðargrunn rekstursins og bæta afkomu félagins. „Það sem skiptir mestu máli núna er hröð og markviss framkvæmd,“ segir hann í afkomutilkynningu VW. Sjá einnig Segir VW standa frammi fyrir 20% kostnaðaróhag­ræði Volkswagen hefur haft til skoðunar að leggja samtals niður allt að 100 þúsund stöðugildi. Áformin hafa þó mætt harðri andstöðu frá verkalýðsfélögum. Gert er ráð fyrir að stjórnendur VW muni funda saman í ágúst að loknu sumarfríi, að því er segir í frétt WSJ.

Share this article