Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 23.7.2026 | 11:28 Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Aldís Björgvinsdóttir, eigandi Gallerí Fló, segist ekki þekkja sjálfa sig í spegli eftir atvikið á þriðjudagskvöldið. Samsett mynd/Aðsend Setja bókamerki „Ég er úr leik í bili og sé ekki með öðru auganu og á að hvíla vegna alvarlegs höfuðhöggs og heilahristings, en þetta fór betur en á horfðist í byrjun,“ segir Aldís Björgvinsdóttir, eigandi Gallerí Fló, sem slasaðist á þriðjudagskvöld um klukkan 19.30 þegar hún féll af hopphjóli á leið heim úr matvöruverslun í Seljahverfinu í Reykjavík. Aldís segir slysið hafa orðið við gangbraut yfir Skógarsel, skammt frá Nettó, þar sem sandur og frágangur á gangstétt hafi skapað hættulegar aðstæður. Hélt að þetta væri smá sandur frá vetrinum „Ég var á leiðinni frá Nettó yfir Skógarselið. Ég sá sand á miðri gangstéttinni, rétt áður en ég kom að gangbrautinni og hélt áfram þar sem ég hélt að þetta væri sandur eftir veturinn, en það næsta sem ég man er að hjólið sekkur og ég lendi í malbikinu. Eftir það man ég ekkert meira,“ segir hún. Seinna um kvöldið þegar vinkona Aldísar fór um svæðið þar sem hún datt, var búið að girða fyrir staðinn þar sem hún datt á hjólinu. Ljósmynd/Aðsend Að sögn Aldísar hafði verið skorið niður í gangstéttina beint við gangbrautina og svæðið verið ómerkt. Hún segir að slysið hefði getað farið mun verr. „Hvað ef bíll hefði verið að keyra fram hjá þegar ég skaust út á götuna? Ég hefði getað lent undir bíl. Og hvað ef þetta hefði verið barn? Þetta var alveg ómerkt og á mjög hættulegum stað,“ segir hún. Hér má sjá staðinn þar sem slysið varð. Ljósmynd/Aðsend „Ekkert sem grípur mig núna“ Aldís starfaði áður sem stjórnandi í tæknigeiranum en ákvað síðar að snúa sér að ástríðu sinni og stofnaði Gallerí Fló, umboðssölu fyrir notaða heimilismuni og húsgögn. Hún er einstæð þriggja barna móðir og segir slysið koma sér illa, bæði persónulega og rekstrarlega. „Það er ekkert sem grípur mig núna, því fyrirtækið er lítið og með takmarkaðan sjóð. Ég er að reyna að byggja þetta upp skuldlaust og stjórna vextinum. Það er því mjög flókið að lenda í svona atviki sem frumkvöðull með lítið fyrirtæki,“ segir hún. Hún tekur fram að hún álíti Hopp ekki bera ábyrgð á slysinu heldur frágang borgarinnar. „Ég vil taka það skýrt fram að ég álasa ekki Hopp-fyrirtækinu, heldur frágangi á gangstéttum borgarinnar,“ segir Aldís, sem býr í Seljahverfi. Hún segist enn ekki hafa heyrt frá borgaryfirvöldum vegna málsins en hafi fengið ábendingar um að íbúar hafi áður bent á hættuna á svæðinu. „Mér var bent á að margítrekað hefði verið bent á þennan stað í Facebook-hópnum Gerum betur!, allt frá 4. febrúar. Það gerir þetta enn alvarlegra,“ segir hún. Aldís var með vörur í pokum sitt hvoru megin á hjólinu þegar slysið varð. „Ég keyri á þetta, framhjólið sekkur og snarstoppar. Svo man ég bara sársaukann þegar ég lendi á andlitinu. Meira man ég ekki.“ Hún var flutt á sjúkrahús eftir slysið, en þar fékk hún að heyra að vegfarendur hefðu komið henni til aðstoðar á vettvangi, auk lögreglu og sjúkraflutningamanna. „Mig langar sérstaklega að heyra í konunni sem kom mér fyrst til hjálpar og þakka henni fyrir. Eins heyrði ég af ungri stúlku í æfingarakstri sem kom mér til hjálpar. Mér var sagt á spítalanum að tveir lögreglubílar og sjúkrabíll hefðu komið á staðinn. Þegar ég vaknaði mundi ég varla neitt, ég mundi ekki einu sinni að dóttir mín byggi í Amsterdam.“ „Hvað ef þetta hefði verið barn?“ Aldís segir slysið sýna hversu mikilvægt sé að frágangur á gönguleiðum og gangstéttum sé öruggur, ekki síst þar sem börn og aðrir óvarðir vegfarendur fari um. „Ástæðan fyrir því að ég er tilbúin að segja frá þessu er í forvarnarskyni. Hvað ef þetta hefði verið barn? Það er galið að hálf gangstétt sé skorin niður beint við götu án þess að það sé merkt með fullnægjandi hætti. Ég fer um svæðið mikið á hjólinu mínu og tel ég að sama slys hefði orðið hefði ég verið á því. Ég er heppin að hafa lifað þetta af,“ segir Aldís að lokum. Svona voru ekki aðstæður þegar Aldís fór um á Hopp-hjóli um daginn. Ljósmynd/Aðsend Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Verkafólk stóð við sitt en aðrir brugðust Þurfti lítið að sannfæra mann Bakari gagnrýndur fyrir ummæli um konur Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslenskur táningur hinn nýi Haaland? Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skoða þarf úrskurðinn í samræmi við þrjú skilyrði Velferðin þarf verðmætasköpun Vald landlæknis jafnað við vald dómstóla Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Mest lesið Í gær Í vikunni Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Stúlkan fannst heil á húfi Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Varað við vindi Smæð Íslands okkar mesti styrkur Léttir víða til: Blíðviðri sunnan heiða á morgun Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Verkafólk stóð við sitt en aðrir brugðust Þurfti lítið að sannfæra mann Bakari gagnrýndur fyrir ummæli um konur Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslenskur táningur hinn nýi Haaland? Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sjá fram á góðan þriðja ársfjórðung Málarar með tárin í augunum í vætunni Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Mest lesið Í gær Í vikunni Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Stúlkan fannst heil á húfi Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Varað við vindi Smæð Íslands okkar mesti styrkur Léttir víða til: Blíðviðri sunnan heiða á morgun Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá

Share this article