- What: Euro banknotes get new design
- Impact: New designs will be introduced for Euro currency
Seðlabanki Evrópu svipti á fimmtudag hulunni af nýrri hönnun sem mun prýða evruseðlana. Tíu ólíkar útfærslur hafa verið birtar, en síðar á árinu verður ein þeirra valin . Þetta er í fyrsta sinn frá því evruseðlarnir voru teknir í notkun árið 2002 sem hönnun þeirra er breytt að ráði. Hönnunin á sér nokkurn aðdraganda. Rúmlega fjögur ár eru liðin síðan áformin voru kynnt. Síðan þá hafa hinir ýmsu rýnihópar komið sér saman um nokkur ásættanleg þemu í samráði við almenning. Útgáfurnar tíu, sem hafa verið fullhannaðar, eru ýmist í þemanu Fuglar og vatn eða Evrópsk menning . Verði síðarnefnda þemað fyrir valinu verða andlit Mariu Callas, Ludwig van Beethoven, Mariu Curie, Miguel de Cervantes, Leonardo da Vinci og Berthu von Suttner á seðlunum. Liðin eru 45 ár frá því íslenska seðlaröðin var kynnt til leiks. Flest nágrannaríki hafa endurnýjað sína seðla síðan þá. Í samtali við fréttastofu í fyrra sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri að engin áform væru þó uppi um að endurhanna seðlana.