Fari svo að áætlanir stjórnar alþjóða knattspyrnusambandsins gangi eftir verður 20% hlutur í nýju viðskiptafélagi seldur til einkafjárfesta. Það væri í kringum 4,2 milljarðar dollara eða um 527 milljarðar íslenskra króna sem Gianni Infantino, forseti FIFA, segir að fari í uppbyggingu heimsfótboltans. Félagið mun koma til með að heita FIFA Forward Enterprise og er því meðal annars falið að sjá um að auka og halda utan um viðskiptatekjur FIFA. FIFA myndi færa hluta af viðskiptastarfsemi sinni inn í félagið og hleypa einkafjárfestum að borðinu með því að gefa eftir 20%. Samkvæmt frétt The Times um málið myndu fjárfestarnir ekki eignast hlut í sjálfu FIFA og því ekki koma nálægt íþróttatengdum ákvörðunum eins og reglum eða framkvæmd móta. UEFA gagnrýnir áformin Áformin hafa vakið hörð viðbrögð, meðal annars hjá evrópska knattspyrnusambandinu, UEFA. Sambandið segir FIFA vera að fara yfir mörk og að ekki eigi að vera hægt að selja stjórn og framtíð fótboltans með þessum hætti. Samkvæmt breskum fjölmiðlum er stefnt að því hjá aðildarsamböndum UEFA að halda neyðarfund vegna málsins þar sem möguleg sniðganga á HM verði meðal annars rædd. Innan UEFA óttast fólk að verið sé að gera fótboltann að viðskiptavöru og við það glatist trúverðugleiki. Helstu gagnrýnendur áformanna óttast að fjárhagslegir hagsmunir verði teknir fram yfir hagsmuni íþróttarinnar.