Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tékkar styðja áform FIFA

Read Full Article →

Knattspyrnusamband Tékklands hefur lýst yfir stuðningi við umdeild áform Gianni Infantino, forseta FIFA, um að afla allt að 20 milljarða dala með sölu á hlut í Fifa Forward Enterprise, félagi sem er ætlað að sjá um fjármálahliðina tengda heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. David Trunda, forseti tékkneska sambandsins, segir samstarf við FIFA hafa reynst tékkneskri og evrópskri knattspyrnu vel og telur áformin geta haft jákvæð áhrif, þótt frekari upplýsingar þurfi að liggja fyrir. Afstaða hans sker sig þó úr í Evrópu, þar sem meðal annars enska, hollenska og rúmenska knattspyrnusambandið hafa lýst yfir andstöðu. Samkvæmt fréttum sem birst hafa um málið síðasta sólarhringinn hyggst FIFA fá einkafjárfesta að verkefninu til að auka tekjur og framlög til aðildarsambanda en í gær var fjallað um að KSÍ gæti fengið fimm milljarða fyrir samþykki við hugmyndum Infantino. Fundað er um málið á rafrænum fundi innan UEFA í dag.

Share this article