Málmleitarfélagið Amaroq birti í morgun framleiðslumarkmið og afkomuspá fyrir árið 2026. Félagið áætlar að gullframleiðsla Nalunaq-námunnar í ár verði 25–35 þúsund únsur. Til samanburðar nam gullframleiðsla félagsins í fyrra um 6.600 únsum. „Gert er ráð fyrir að framleiðsla og sala aukist á seinni hluta ársins þegar 2. áfangi flotaðskilnaðar verður að fullu kominn í rekstur. Framleiðsla á fyrri helmingi ársins er áætluð 7–10 þúsund únsur,“ segir í tilkynningu Amaroq til Kauphallarinnar. Þess má geta að heimsmarkaðsverð gulls nemur í dag í kringum 5.180 dali á únsu. „Við núverandi markaðsaðstæður og með agaða kostnaðaráætlun að leiðarljósi gerum við ráð fyrir sterku sjóðstreymi frá rekstri sem gerir okkur kleift að framkvæma umfangsmiklar rannsóknaráætlanir. Markmið okkar er að hámarka virði eignasafnsins á öllum stigum, frá markvissri leit og vexti auðlinda til uppbyggingar innviða sem styðja við áframhaldandi vöxt,“ segir Eldur Ólafsson , forstjóri Amaroq. Félagið segir framleiðslumarkmiðið byggja á áætluðum styrkleika gulls í berginu, gangsetningu annars áfanga í vinnslustöðinni á öðrum fjórðungi, sem og fyrirhuguðum stöðvunum vegna viðhalds og mögulegum ófyrirséðum aðstæðum. Endurheimtuhlutfall í fyrsta áfanga er áætlað um 60%, en gert er ráð fyrir að það hækki í 90–95% eftir gangsetningu annars áfanga. Félagið gerir ráð fyrir að styrkleiki gulls (head grade) verði á bilinu 14–15 g/t með eðlilegum sveiflum yfir árið eftir því hvaða svæði Mountain Block æðarinnar fer í gegnum vinnsluna. Rekstrarkostnaður verði á 1.250-1.450 dalir á únsu Rekstrarkostnaður Nalunaq (e. cash costs) er áætlaður á bilinu 44-47 milljónir dala og rekstrarkostnaður með viðhaldsfjárfestingum (e. all-in sustaining cost - AISC) 69-73 milljónir dala. Gert er ráð fyrir aukinni gullframleiðslu og lægri kostnaði á seinni helmingi ársins, samhliða breyttu rekstrarfyrirkomulagi í Nalunaq, frá verktöku yfir í eigin rekstur (e. owner-operator), meðal annars í borunum, vinnslu og stoðþjónustu. Amaroq segir að þessi breyting muni leiða til lægri einingarkostnaðar á seinni helmingi ársins samanborið við þann fyrri. Áætlað er að AISC á fjórða ársfjórðungi 2026 verði á bilinu 1.250–1.450 dali á únsu, með áætlaða framleiðslu upp á 10–12 þúsund únsur. Að auki er gert ráð fyrir um USD 14 milljónum í frekari fjárfestingar í Nalunaq sem falla utan viðhaldsfjárfestinga (e. non-sustaining capital) vegna lokafrágangs og gangsetningu vinnslustöðvarinnar, kaupum á búnaði og stækkun á núverandi aðstöðu starfsfólks. Viðræður um fjármögnun nýs þjónustufélags Eldur nefnir í tilkynningunni að viðræður standi yfir við fjárfesta um sjálfstæða fjármögnun þjónustufélags Amaroq, Suliaq, hefur þann tilgang að sjá námuiðnaði í Grænlandi fyrir nauðsynlegum tækjum, rekstrarvörum og þjónustu. Sjá einnig Stærsti hluthafinn fjárfestir í nýju þjónustufélagi Amaroq Eldur segir að sú vegferð sé skýrt dæmi um það hvernig félagið hyggist nýta rekstrargrunn Amaroq til að styðja við námuvinnsluna og á sama tíma draga úr áhættu tengdri þeim verulegu vaxtartækifærum sem felast í frekari auðlindaþróun á Grænlandi. „Við stöndum frammi fyrir afar spennandi tækifærum og erum að meta leiðir til að hraða þróun lykilverkefna til að auka verðmætasköpun með skilvirkari og hraðari framkvæmd. Með því að nýta innviði okkar, sérþekkingu og öflugt teymi er félagið afar vel í stakk búið til að skapa aukið og varanlegt virði fyrir hluthafa.“