Víkingur og Valur töpuðu bæði einvígum sínum í forkeppnum Evrópukeppna karla í fótbolta í kvöld. Víkingur tók á móti svissnesku meisturunum í Thun, sem unnu heimaleikinn 3-0, í forkeppni Evrópudeildarinnar. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Víking, Fabio Fehr kom Svisslendingum yfir á tíundu mínútu en Gylfi Þór Sigurðsson jafnaði á 16. mínútu með laglegu skoti. Aftur komst Thun yfir, nú með marki Brighton Labeau á 35. mínútu en aftur jöfnuðu Víkingar, Stígur Diljan Þórðarson skoraði á 37. mínútu og 2-2 stóð í hálfleik. Valdimar Þór Ingimundarson kom Víkingum yfir á 55. mínútu. Heimamenn fengu svo urmul færa til að gera alvöru leik úr þessu en tókst ekki að nýta þau svo Thun vann einvígið samtals 5-3. Víkingur fer þá í umspil Sambandsdeildarinnar og mætir þar Borac Banja Luka frá Bosníu og Hersegóvínu. Víkingar byrja á heimaleik 20. ágúst og halda svo út viku síðar. Stórt tap Valsara Valur sótti danska liðið Nordsjælland heim í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Danirnir unnu fyrri leikinn 2-0 og ekki byrjaði það vel fyrir Val í dag því Hjalte Boe skoraði fyrir heimamenn á fjórðu mínútu. Villum Berthelsen skoraði svo annað mark þeirra í uppbótartíma fyrri hálfleiks og vonir Vals orðnar að engu. Nordsjælland bætti við þremur mörkum í seinni hálfleik, Markus Walker, Lamine Sadio og Levy Néné skoraði þau. 5-0 fór, samtals 7-0, og Valur er úr leik.