Ísland átti átta keppendur á Evrópumótinu fyrir tveimur árum en þá komst enginn í 12 manna úrslit. Framfarirnar á EM í Birmingham í ár voru svo talsverðar. „Að komast inn með átta keppendur aftur núna og ná miklu betri árangri er frábært skref og auðvelt að gera Evrópumótið upp á þann hátt að við séum á réttri leið,“ segir Guðmundur Karlsson við RÚV. Guðmundur er framkvæmdastjóri Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) en jafnframt afreksstjóri sambandsins. Afreks- og framkvæmdastjóri Frjálsíþróttasambands Íslands er ánægður með árangur Íslands á nýafstöðnu Evrópumóti í Birmingham. Þar náðist besti heildarárangur Íslendinga í tæpa þrjá áratugi. Hann segir stefnuna setta á að berjast um verðlaun á næsta Ísland hafði ekki átt jafn marga keppendur meðal tólf efstu á EM í 28 ár og engan á topp átta síðan árið 2002. Guðmundur segir því jákvæð teikn á lofti. „Já, mjög jákvæð. Við erum að koma frá þessu móti með keppendur í 7., 10., 12., 13. og 14. sæti sem að sýnir okkur að við eigum fullt erindi meðal þeirra bestu í Evrópu. Sumir af þessum keppendum okkar eru líka ungir og eiga langt eftir. En svo erum við með keppendur komna yfir þrítugt í kastgreinum sem eiga nóg eftir, því þar er líftíminn yfirleitt lengri á hæsta getustigi. Þannig að ég er mjög bjartsýnn á framhaldið.“ En það er eitt að ná árangri, annað að viðhalda honum eða ná betri árangri. „Það þarf að halda áfram að gera það sem við höfum gert vel. Þessir krakkar eru flestir á ágætum stað úti í heimi við æfingar. Þau eru fæst hérna heima, þannig að við þurfum að passa upp á að þau geti notið sín í þeirri umgjörð sem þarf til þess að ná viðlíka árangri eða hvað þá betri,“ segir Guðmundur. Þarf að hlúa vel að næstu kynslóð En svo þarf að hlúa að næstu kynslóð. Það byrjar allt hér heima með þeirri góðu þjálfun sem unnin er á Íslandi segir Guðmundur. Fleira þarf þó til. „Til dæmis þarf að keyra áfram Afreksmiðstöð Íslands sem er komin í gang hérna heima, en þarf að gera mun betur. Það þarf að tengja líka aðstöðu sem er þá þjóðarhöllin og svo þjóðarleikvangur fyrir okkur í frjálsíþróttum, sem þarf að vera með í þessu flæði sem nú er fram undan, til þess að við getum haldið áfram að byggja upp þetta afreksfólk, grunninn að því, til að ná árangri seinna meir. Þannig að það er það sem þarf að gerast og það þarf meira fjármagn inn í þetta og þá er ég að tala um mikið meira fé til þess að ná þessum árangri í framhaldinu.“ Næstu stórmót utanhúss í frjálsíþróttum eru heimsmeistaramótið í Kína eftir rúmt ár, Evrópumót í Póllandi í júní 2028 og svo Ólympíuleikarnir í Los Angeles sama ár. Markmiðið að slást um verðlaun á EM 2028 „HM er náttúrulega eitt skref upp í gæðum svo við séum alveg hreinskilin með það. En ef við verðum með fjóra keppendur á HM og næðum einum þeirra í úrslit væri það frábær árangur. Síðan ef við horfum á EM 2028 þá höfum við sett stefnuna á verðlaun. Við viljum komast með fleiri þar inn í topp átta og eiga möguleika á því að vinna til verðlauna á EM í Silesia í Póllandi, það er markmiðið.“