Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ineos í erfiðri stöðu og skoðar eignasölu

Read Full Article →

Ineos, fyrirtæki Jim Ratcliffe sem sérhæfir sig á sviði efnavinnslu (e. chemicals), er nú með eignasölu til skoðunar til að létta á skuldastöðu félagsins. Jafnframt hefur félagið átt í viðræðum við lánardrottna um endurfjármögnun skulda. Ineos skoðar að selja eignir dótturfélagsins Inovyn sem gætu verið hundruð milljóna punda virði, samkvæmt heimildarmönnum Financial Times . Inovyn framleiðir m.a. vítissóta og plastefnið PVC sem eru notuð í byggingargeiranum. Ineos hefur einnig átt í viðræðum við lánardrottna um endurfjármögnun skuldabréfa sem eru á gjalddaga á næsta ári. Hluthafar hafa á síðustu vikum veitt félaginu 200 milljóna evra hlutafjáraukningu, eða sem nemur 29 milljörðum króna, auk þess sem félagið hefur tryggt sér fjármögnun upp á 300 milljónir evra í tengslum við birgðir þess. Ineos reiddi sig mikið á skuldsetningu þegar félagið réðst í nokkrar yfirtökur og komst í hóp stærstu fyrirtækja heims á sínu sviði. Verð á skuldabréfum Ineos hefur lækkað verulega á síðustu mánuðum vegna áhyggja af stöðu iðnaðarins og hárri skuldsetningu félagsins. Verð á skuldabréfum Ineos Quattro, annað af tveimur eignarhaldsfélögum sem samstæðan nýtir til að gefa út skráð skuldabréf, var á pari í september sl. en var komið niður í 65 sent á dollarann í síðasta mánuði. Það hefur aðeins rétt úr kútnum og var komið í 80 sent á dollarann um miðjan febrúar í kjölfar þess að tilkynnt var um ofangreinda fjármögnun. Í umfjöllun Financial Times segir að rekstrarumhverfi í evrópska efnaiðnaðinum sé afar krefjandi um þessar mundir. Framleiðendur standi frammi fyrir samkeppni við ódýran innflutning frá Kína, hátt orkuverð og íþyngjandi regluverk. Þá séu merki um offramboð og eftirspurn víða um heim er sögð dræm. Sjá einnig Orkufyrirtæki Ratcliffe hættir fjárfestingum í Bretlandi Aðlagaður EBITDA-hagnaður Ineos Inovyn dróst saman um 41% á árinu 2024 og nam 348 milljónum punda, samkvæmt síðasta birta ársreikningi félagsins. Félagið ákvað í fyrra að lokum tveimur framleiðslustöðvum í Þýskalandi og vísaði til hás orkuverks og kolefniskostnaðar og kvartaði jafnframt yfir skorti á tollvernd.

Share this article