Milljarðamæringurinn Andrea Pignataro og fjártæknisamsteypa hans, Ion, greiddu húsaleigu of seint á skrifstofum í þremur heimsálfum á þessu ári. Leigusalar lokuðu starfsfólk úti eða hótuðu fyrirtækinu, sem er mjög skuldsett, útburði. Þetta kemur fram í frétt Financial Times. Starfsmenn Ion í Sydney mættu til vinnu í Salesforce-turninum, næsthæsta skýjakljúfi borgarinnar, og fundu tilkynningu um útburð vegna um 90 þúsund dala vangoldinnar leigu. Í München var starfsfólki meinaður aðgangur að skrifstofunni vikum saman í síðasta mánuði eftir að um 40 þúsund dalir voru ekki greiddir á réttum tíma. Leigusali í Connecticut höfðaði jafnframt mál í maí og sakaði dótturfélag Ion um að hafa hvorki greitt marsleiguna né yfirgefið húsnæðið þegar þess var krafist. Skuldirnar í Sydney og München hafa nú verið greiddar og málið í Connecticut var fellt niður í síðasta mánuði. Fjárfestar hafa undanfarið beint sjónum sínum í auknum mæli að tíu milljarða dala skuldum Ion og hugsanlegum áhrifum nýrrar gervigreindartækni á hugbúnaðarrekstur þess. Samsteypan, sem á meðal annars hugbúnaðarfyrirtækin Mergermarket, Fidessa og Dealogic, óx hratt með skuldsettum yfirtökum þegar vextir voru í sögulegu lágmarki. Samstæðan skilar um 400 milljóna dala rekstrarhagnaði fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir á ársfjórðungi. Fjármögnunarkostnaður Ion hefur meira en tvöfaldast frá árinu 2022 og nemur nú um 800 milljónum dala á ári. Skuldabréf félagsins eru að nafnvirði 1,5 milljarða dala en hafa fallið í verði undanfarið. Bréfin eru skráð á 80 sent á hvern dal, samanborið við 96 sent um miðjan janúar. Ávöxtunarkrafa hluta skuldanna er því komin yfir 12%. Eignarhaldsfélag Ion skuldar auk þess einkafjárfestum, þar á meðal HPS í eigu BlackRock, 2,5 milljarða dala. Ion rekur yfir 50 skrifstofur og innan samstæðunnar starfa um 13 þúsund starfsmenn. Fyrirtækið segir málin venjulegan ágreining við leigusala sem hafi verið leystur. Ekkert sé lengur ógreitt og fjárhæðirnar óverulegar miðað við árstekjur samstæðunnar.