Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Matvælaverð á heimsvísu ekki hærra í þrjú ár

Read Full Article →

Alþjóðlegt matvælaverð hækkaði í júlí um 0,6% milli mánaða og hefur ekki verið hærra í þrjú ár. Þetta kemur fram á vef Bloomberg en þar segir að áhyggjur af kornframboði hafi til að mynda aukist samhliða óhagstæðu veðurfari á mikilvægum ræktunarsvæðum. Hækkunin var einnig leidd af verðhækkun á sykri og jurtaolíum samkvæmt Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO). Athygli á alþjóðlegum matvælamörkuðum hefur að undanförnu færst frá þeim óróa sem stríð Bandaríkjanna og Írans olli yfir í lakari uppskeruhorfur, óvissu í alþjóðaviðskiptum og þrálátar áhyggjur af veðurfari. Sjá einnig Verðhækkanir á matvælum gætu þrefaldast Átök Rússlands og Úkraínu hafa einnig leitt til áhyggna af kornútflutningi frá Svartahafssvæðinu en það svæði gegnir lykilhlutverki í kornviðskiptum á heimsvísu. Á sama tíma stefnir í einn mesta samdrátt í kornuppskeru í Evrópu frá upphafi mælinga. Miklir hitar hafa komið illa niður á ræktun víða um álfuna og hafa þurrkar á mikilvægum ræktunarsvæðum í Bandaríkjunum einnig ógnað uppskeru maís og sojabauna.

Share this article