Sundsérfræðingurinn og lýsandinn Ingi Þór Ágústsson er afar spenntur fyrir Evrópumótinu í sundi sem fram undan er. Ísland er með tíu keppendur og er þetta stærsti íslenski keppendahópur í sögunni. Ingi segir þetta jólin fyrir sundaðdáendur og setur miklar kröfur á Snæfríði Sól Jórunnardóttur. „Þetta eru jólin fyrir mig.“ Viðtal við Inga um EM má sjá hér að neðan. Ísland sendir sinn stærsta hóp frá upphafi á Evrópumeistaramótið. Ingi Þór Ágústsson gerir miklar kröfur til Snæfríðar Sól Jórunnardóttur en segir jafnframt spennandi að fylgjast með ungu sundfólki stíga sín fyrstu skref á stórmóti. Íslenski hópurinn: Hólmar Grétarsson - 400 m fjórsund, 200 m flugsund Jóhanna Elín Guðmundsdóttir - 100 m skriðsund, 50 m flugsund, 50 m skriðsun4d Vala Dís Cicero - 100 m skriðsund, 200 m skriðsund, 50 m skriðsund Snæfríður Sól Jórunnardóttir - 100 m skriðsund, 200 m skriðsund, 50 m skriðsund Birnir Freyr Hálfdánarson - 50 m flugsund, 100 m flugsund, 200 m fjórsund Símon Elías Statkevicius - 50 m flugsund, 50 m skriðsund Einar Margeir Ágústsson - 100 m bringusund, 200 m bringusund, 50 m bringusun Snorri Dagur Einarsson - 100 m bringusund, 50 m bringusund Birgitta Ingólfsdóttir - 100 m bringusund, 50 m bringusund Guðmundur Leo Rafnsson - 200 m baksund, 50 m baksund, 100 m baksund „Við eigum von á mjög skemmtilegri keppni. Þetta er mjög dreifður hópur. Þetta eru einstaklingar sem hafa farið áður á stórmót og einstaklingar sem eru að stíga sín fyrstu skref. „Snæfríður Sól er okkar sterkasti sundmaður í dag. En svo eru að koma Vala Dís Cicero. Hólmar er að koma upp. Birnir er að koma upp og svo eru Snorri og Birgitta. Þetta er flottur hópur og þetta er stærsti hópur sem við höfum sent á Evrópumeistaramótið í sögunni. Þannig að það verður fróðlegt að sjá reynda keppendur með ungum sem eru að stíga sín fyrstu skref.“ Gerir kröfur á Snæfríði Ingi er óhræddur við að setja kröfur á Snæfríði Sól. Þá verður mótið mikilvæg reynsla fyrir yngstu keppendur Íslands. Mótið er talið eitt það sterkasta í áraraðir. „Ég geri miklar kröfur um að Snæfríður verði í úrslitum. Hún verður í undanúrslitum á góðum tíma, slær svo Íslandsmet og fer inn í úrslitin. Svo er spurning hvað ungviðið ætlaði að gera á mótinu. Þarna eru mjög sterkir keppendur. Þetta er sterkasta Evrópumeistaramót sem hefur verið haldið í mörg, mörg ár.“ „Við eigum eftir að sjá hörkukeppni og þá er bara að stíga upp. Íslensku keppendurnir verða svolítið að gera það, að halda haus og koma inn í þetta mót fullir sjálfstrausts og gera sitt besta.“ Fylgist með þessum Ingi var einnig beðinn um að velja sundfólk sem vert er að fylgjast með. Adam Peaty – breskur bringusundsmaður Sarah Sjöström – sænska tundurskeytið í 50 m skriðsundi og flugsundi Marrit Steenbergen – hollensk skriðsundskona Léon Marchand – franskur Ólympíumeistari í fjórsundi, bringusundi og flugsundi David Popovici – rúmenskt skriðsundkappi og Ólympíumeistari Evrópumótið í sundi stendur yfir dagana 10. - 16. ágúst í París í Frakklandi. Ísland á tíu keppendur á mótinu og RÚV sýnir beint frá öllum mótshlutum.