Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ísland hefur lokið keppni á EM eftir harða keppni

Read Full Article →

Íslenska liðið hóf leik í forkeppninni þar sem barist er um sæti í úrslitum, og þar er gjarnan hörð og erfið barátta. Íslenska liðið skipuðu Ágúst Ingi Davíðsson, Dagur Kári Ólafsson, Martin Bjarni Guðmundsson og Valgarð Reinharðsson auk þess sem Jónas Ingi Þórisson keppti í einstaklingskeppninni á gólfi. Evrópumót karla í áhaldafimleikum er hafið í Zagreb í Króatíu. Íslenska landsliðið keppti í dag og markmiðið var að koma öllu íslenska liðinu inn á heimsmeistarmótið. Íslenska liðið átti erfitt uppdráttar á svifránni sem var fyrsta áhald en gekk mun betur á gólfi og bogahesti. Dagur Kári var sterkastur á hestinum. Hefði jafnvel komist í úrslit ef hann hefði haldið út „Fyrri hlutinn gekk mjög vel og ég gæti ekki verið sáttari með hann. En í seinni hlutanum klúðraði ég aðeins. Ég veit að ef ég hefði klárað áhaldið almennilega þá hefði ég verið í séns á því að komast í úrslit en það verður víst að bíða betri tíma,“ sagði Dagur Kári. Á hringjunum gekk keppnin svo frekar hnökralaust fyrir sig, sem og í stökki og á tvíslá. Þrátt fyrir það tókst íslenska liðinu þó ekki að tryggja sér sæti á HM eins og stefnan hafði verið sett á. HM markmiðið náðist ekki „Markmiðið hér á EM var auðvitað að komast á heimsmeistaramótið með allt liðið. Við sjáum núna að það tókst því miður ekki í dag,“ sagði Ágúst Ingi Davíðsson eftir keppni Íslands í dag. Jónas Ingi Þórisson átti svo fina frammistöðu í einstaklingskeppninni í gólfæfingum og halaði þar inn 13,133 stigum sem var hæsta einkunn Íslendingana í dag á því áhaldi.

Share this article