Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hver er staðan fyrir ÓL? „Kemur smá skjálfti um mann“

Read Full Article →

Tíu manna íslensk sveit keppti á Evrópumótinu í sundi en enginn Íslendingur komst áfram í úrslitahluta. Besti árangur Íslendings á mótinu var 30. sæti. Ingi Þór Ágústsson segir árangurinn ágætan ef litið er til hlutfalls þeirra greina sem íslensku keppendurnir bættu sig í. Hann telur hins vegar að halda þurfi vel á spöðunum næstu tvö ár. Annars verði íslenski hópurinn á Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028 fámennur. Ísland fær tvö kvótasæti sama hvað, eina konu og einn karl. Ef rýnt er í árangur Íslands út frá stiganiðurstöðu var Ísland í 38. sæti af 48 þjóðum. Skelfur smá er hann hugsar til LA Ingi telur að framtíðin sé björt fyrir Ísland, enda var stór hluti íslenska hópsins á EM ungur að árum. Þá hefur Ísland ekki haft svo marga keppendur frá EM 2012. Það eru hins vegar fá þeirra í topp 20 í Evrópu sem stendur. Þau þurfa að taka stór skref á næstu árum ef þau ætla sér á Ólympíuleika. „Framtíðin er björt fyrir sundheiminn hér á Íslandi ef vel er haldið á þessu. Næstu ár koma náttúrulega til með að skera úr um þetta. Það eru tvö ár í Ólympíuleika sem verða í Los Angeles 2028. Eins og staðan er í dag þá kemur svona smá skjálfti um mann. Það er bara Snæfríður Sól sem er í topp tuttugu í 200 metra skriðsundi. Aðrir sundmenn hjá okkur eru ekki í toppbaráttu. Besti einstaklingsárangur á Evrópumeistaramótinu var þrítugasta sæti.“ Sundi verður gert afar hátt undir höfði á Ólympíuleikunum í ár, en ameríska fótboltaleikvanginum So-Fi verður breytt í sundhöll. Þá verður leikunum lokað með sundkeppni í stað frjálsíþróttahlutans eins og hefur verið. „Þannig að við þurfum kannski aðeins að fara að spýta í lófana ef við ætlum okkur að vera meðal topp 16, að minnsta kosti í Evrópu, á næstu tveimur árum fram að leikum. Ég held að ef við skoðum stöðuna í dag, ef maður horfir bara blákalt á þetta, þá erum við bara að fara með tvo sundmenn inn á Ólympíuleika. Vonandi fleiri, en bara tvo ef við horfum svona blákalt á þetta eins og staðan er í dag,“ sagði Ingi. Árangurinn heilt yfir fínn - en hvar stöndum við? Ingi lagðist yfir árangur íslensku sveitarinnar. Íslendingarnir 10 kepptu í 21 grein og bættu persónulegan tíma sinn átta sinnum. Þar kemur Ísland vel út í samanburði við helstu keppinauta sína. „Hvað mig varðar þá er árangur Íslendinganna bara heilt yfir fínn. Ef maður skoðar árangur inn eftir mótið, þegar maður er aðeins búinn að fá að sofa á þessu. Persónuleg bæting er 33% sem er vel yfir meðaltali allra þjóða á mótinu, sem er mjög góður árangur. Ef við berum okkur saman við aðrar Norðurlandaþjóðir og smáþjóðir sem við erum að bera okkur saman við þá er þetta bara nokkuð gott. Við erum bara í meðaltalinu.“ „Eina Norðurlandaþjóðin sem nær verðlaunum á þessu móti er Svíþjóð. Það eru bara Sarah Sjöström og Sarah Junevik. Aðrar Norðurlandaþjóðir eru ekki að ná í verðlaunapening á þessu móti. Það er ekki heldur ef við skoðum aðrar smáþjóðir. Ingi tekur Einar Margeir og Jóhönnu Elínu sérstaklega út fyrir sviga. „Einar Margeir Ágústsson stendur náttúrlega upp úr sem fulltrúi Íslands. Hann nær að bæta sig í öllum þessum greinum sem hann syndir í lauginni og gerir það vel. Svo var Jóhanna Elín Guðmundsdóttir að bæta sig í einni grein. Svo er þetta bara flottur árangur, blandað lið. Flott ungt lið og með eldri og reyndari sundmönnum. Við þurfum að halda vel utan um þessa krakka, þessa framtíð okkar sem við erum að horfa í, að þeir verði hér fulltrúar okkar á næstu stórmótum.“ Hvað getum við gert? En hvað þarf að gerast til að lendingin verði góð í Los Angeles? Hvaða lausnir eru á borðinu? Ingi telur að það gæti verið vert að skoða að senda sundfólkið erlendis. „Það þarf að halda vel utan um þessa krakka. Það er spurning hvort við þurfum að huga að því að senda þessa krakka aðeins meira erlendis. Þetta er umdeilt.“ „Eins og Birnir sagði sjálfur í viðtali þá er hann alveg langbestur á Íslandi. Þegar hann kemur á Evrópumótið þá er hann lítill fiskur í stórri tjörn. Þá er líka spurning um að þessi litli fiskur fari og syndi með þeim sem eru að synda með allra bestu liðum í heiminum. Nái þar af leiðandi þessari keppni og þessum aga sem er í stærri liðum. Ég er ekki að segja að það sé ekki á Íslandi, en það er spurning hvort það mætti fara að huga að því.“ „Heimurinn hélt þetta væri búið“ Þjóðverjinn Johannes Liebmann setti stórkostlegt heimsmet í 1500 metra skriðsundi á Evrópumótinu í París í kvöld. Liebmann, sem er aðeins 19 ára, varð fyrstur í sögunni til að synda vegalengdina á innan við 14 mínútum og 30 sekúndum. Ingi trúir því varla enn að þetta hafi gerst. 1500 metra skriðsund þykir ein af erfiðustu greinum sundsins. „Hvað á maður að segja? Ég tapaði mér algjörlega í útsendingunni. Eins og krakkarnir okkar segja, ég er fæddur 1900 og eitthvað.“ „Þegar ég varð vitni að því 1980, þegar það var fyrst farið undir fimmtán mínútur í 1500 metra skriði, þá hélt heimurinn að þetta væri bara búið. Að það væri enginn að fara að synda þetta hraðar. Núna tuttugu og sex árum seinna er fyrsti einstaklingurinn nítján ára gamall að fara undir 14 og hálfa mínútu. Þetta er bara eitthvað allt annað. Allur sundheimurinn er bara að tala um þetta. Sem og Gretschen Wald sem setti heimsmet í 50 metra skriðsundi á Pan-Ameríkuleikunum. Það er bara þetta tvennt sem er að ræða. Hvað á maður að segja? Hann er nítján ára gamall, hann er varla farinn að mynda sýru.“ Kostulega lýsingu Inga má sjá hér. Evrópumótinu í sundi lauk í gærkvöldi. Sundsérfræðingurinn Ingi Þór Ágústsson telur að halda þurfi vel á spöðunum næstu ár, annars mæti fáir Íslendingar til leiks á Ólympíuleikunum 2028. Hversu erfitt er að synda 1.500 metra skriðsund? „Það er alltaf talað um þetta sem eina erfiðustu greinina í sundi. Það er bara ótrúlegt að þessi einstaklingur sem er að synda 1.500 metra skriðsund og halda þarna þessum hraða. Meðalmaðurinn er að synda í lauginni og tekur 100 metrana á 2:30 eða eitthvað svoleiðis. Þarna er 19 ára gamall strákur að synda hvern einasta 100 metra fimmtán sinnum á 58 sekúndum. Það er bara eitthvað annað. Það er bara eitthvað annað. Í alvörunni.“

Share this article