Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Óhræddur við að segjast ætla í úrslit á EM

Read Full Article →

Sindri Hrafn Guðmundsson hefur keppni á EM í frjálsíþróttum í Birmingham á morgun þegar hann keppir í forkeppni spjótkastsins. Sindri er á sínu þriðja Evrópumóti, en telur sig eiga góða möguleika nú á því að komast í úrslit í fyrsta sinn á stórmóti og er ekkert feiminn við að lýsa þeim draumum sínum yfir. „Ég er mjög vel stemmdur. Það sést kannski ekki, en það er heitt út og rakt, sem ég er orðinn vel vanur eftir mína búsetu í Bandaríkjunum. Þannig að ég held að þetta verði mjög fínt í þessari vikur,“ segir Sindri Hrafn Guðmundsson sem keppir í forkeppni spjótkastsins á EM í Birmingham á morgun. Heitt og heiðskírt á morgun Veðurspáin á morgun er þannig að það verði 30 gráðu hiti og heiðskírt þegar spjótkastsforkeppnin verður. „Ég keppti á EM í Berlín árið 2018 þar sem var virkilega heitt. En maður gerir sig bara kláran fyrir það, tekur með sér handklæði með klökum og eitthvað svoleiðis sem getur kælt mann niður í rauninni. Sérstaklega þegar maður er frá Íslandi að þá er maður ekkert vanur of miklum hita, jafnvel þó ég búi í Bandaríkjunum. En það verða allir í sama hitanum og það kemur bara í ljós hvernig það fer.“ Spjótkastarinn Sindri Hrafn Guðmundsson ætlar sér í úrslit á Evrópumótinu í frjálsíþróttum. Hann keppir í forkeppninni á morgun og telur sig eiga góða möguleika. En með hvaða væntingar fer Sindri inn í keppnina? „Ég ætla í úrslit. Það hefur verið á planinu frekar lengi og ég held að það sé alveg góður möguleiki á því. Þetta er samt auðvitað sterkt mót og maður veit aldrei hvað gerist. En það er alltaf planið að fara í úrslit.“ Góður dagur á að koma honum í úrslit Sindri hefur kastað nokkuð stöðugt yfir 80 metra að undanförnu og geri hann það á morgun gæti hann hæglega komist í úrslit, gangi allt upp. Þeir sem kasta yfir 82 metra fara beint í úrslit en annars eru þetta þeir tólf kastarar með lengstu köstin á morgun sem komast í úrslitin. „Ég veit alveg að ég get kastað miklu lengra en ég hef kastað nú þegar, það er engin spurning. Þannig að góður dagur kemur mér alveg vel langt inn í úrslit,“ segir Sindri Hrafn, spenntur fyrir því að vera kominn á EM. „Já, það er alltaf gaman að koma á svona stór mót og fá að keppa á móti hinum góðu spjótkösturunum og sýna hvað maður getur gert.“ Súrrealískt að sjá fjölskylduna í stúkunni í Tókýó Sindri er á sínu þriðja Evrópumóti og keppti líka á heimsmeistaramótinu í Tókýó í fyrra. En hvaða máli skiptir sú reynsla? „Hún skiptir auðvitað máli, sérstaklega að vera vanur því að keppa við alla þessa stóru karla. Ég er bara einn af þeim núna. Þannig að vera tilbúinn í hvað sem er, því maður veit aldrei hvað getur gerst í svona keppni. Þannig að ég held að það sé orðinn styrkleiki hjá mér núna þegar ég er búinn að safna nokkrum stórmótum í sarpinn. Allir keppa á mótinu við sömu kringumstæður og ég tel mig eiga fína möguleika á því að kasta mér inn í úrslit.“ Fjölskylda Sindra fylgir honum til Birmingham, sem hann segir gefa sér aukinn kraft. „Það er engin spurning. Foreldrar mínir og konan mín komu til Tókýó á HM í fyrra og það var hálfsúrrealískt að sjá þau þar uppi í stúku. Að fá þau með mér hingað líka og sjá svo fullt af fleiri Íslendingum sem eru hérna er bara frábært. Að heyra íslenskuna og sjá íslenska fánann uppi í stúku gerir gæfumuninn.“ Keppni í spjótkastinu hefst laust eftir hádegi á morgun en bein útsending RÚV frá EM í frjálsíþróttum hefst klukkan 9:30.

Share this article