Þrír íslenskir keppendur stigu á stokk í undanrásum Evrópumótsins í sundi í dag. Einar Margeir Hálfdánsson synti í 200 metra bringusundi þar sem hann gerði vel og kom í mark á 2:15,16. Þar með bætti hann sinn besta tíma um 0,82 sekúndur. Einar var fjórði í sínum riðli en tíminn skilaði honum 32. sæti í greininni. „Mér líður vel. Ég er mjög þreyttur en mjög sáttur við að ná þessari bætingu. Ég náði að vera mjög yfirvegaður fyrri helminginn og barðist vel þann seinni.“ Þetta er önnur persónuleg bæting Einars á mótinu því hann bætti sig einnig í 100 metra bringusundi. Aðspurður hvað skýri þennan árangur segir hann mikilvægt að njóta lífsins. „Maður þarf að njóta þess að lifa og njóta ferðalagsins.“ Þrír íslenskir keppendur syntu í undanrásum á EM í sundi í morgun. Einar Margeir Ágústsson gerði vel þegar hann bætti sinn besta tíma í 200 metra bringusundi. Hann segir fyrst og fremst mikilvægt að njóta lífsins og ferðalagsins. Birnir Freyr svekktur með tímann Birnir Freyr Hálfdánsson synti í undanrásum 50 metra flugsunds. Hann synti á 54,38 sekúndum og endaði í 54. sæti. Alls voru 66 keppendur í greininni. „Mér leið ágætlega. Tíminn var aðeins hægari en ég átti von á en það er eitthvað sem ég þarf að skoða með þjálfaranum.“ Birnir keppir í 200 metra flugsundi á laugardaginn. Þrír íslenskir keppendur syntu í undanrásum á EM í sundi í morgun. Einar Margeir Ágústsson gerði vel þegar hann bætti sinn besta tíma í 200 metra bringusundi. Hann segir fyrst og fremst mikilvægt að njóta lífsins og ferðalagsins. Loks synti Vala Dís Cicero í 200 metra skriðsundi. Hún synti á 2:05,34 og endaði í 43. sæti. „Þetta var svolítið langt frá mínu besta en mér leið vel á meðan. En þetta var ekki tíminn sem ég vildi. Ég þarf að skoða betur hvað ég get gert betur í næstu grein.“ Vala Dís keppir í 50 metra skriðsundi á föstudag. Þrír íslenskir keppendur syntu í undanrásum á EM í sundi í morgun. Einar Margeir Ágústsson gerði vel þegar hann bætti sinn besta tíma í 200 metra bringusundi. Hann segir fyrst og fremst mikilvægt að njóta lífsins og ferðalagsins.