Innlent | Morgunblaðið | 17.8.2026 | 8:00 Aðsend grein: Persónuleg reynsla Steingríms J. af ESB-viðræðum talar skýru máli Guðni Ágústsson. mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Steingrími J. Sigfússyni mælist vel í nýlegri grein sinni. Þessi fyrrverandi formaður Vinstri grænna og ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur reyndi það á eigin skinni í báðum þeim hlutverkum að fara í aðildarviðræður við ESB árið 2009. Það gerði hann reyndar nauðugur viljugur en upplifði það fyrir vikið hve vonlaust það er að leitast eftir varanlegum undanþágum í stærstu hagsmunamálum okkar, landbúnaði og sjávarútvegi. Ég skora á þá sem eru efins og/eða ætla að „kíkja í pakkann“ að kynna sér innlegg Steingríms. Það er vel þess virði að því sé gefinn góður gaumur. Um gömlu aðildarviðræðurnar segir Steingrímur m.a.: „Vel gekk með málaflokka sem féllu innan EES-samningsins enda var þá eingöngu verið að fara yfir innleiðingu laga og reglna. En það gekk lítið sem ekkert í málaflokkum sem sneru að mikilvægustu hagsmunum okkar Íslendinga.„ Og Steingrímur heldur áfram: „Fátt ef nokkuð benti til þess undir lok árs 2012 að Ísland væri að fá gegnumbrot með sín aðal samningsmarkmið í sjávarútvegs-, landbúnaðar-, byggða-, dýra- og plöntuheilbrigðismálum og ýmsu fleiru. Mikilvægustu kaflarnir stóðu fastir óopnaðir og ekki að ástæðulausu, þarna bar langmest á milli. Undir lá og liggur enn hin mikla sérstaða Íslands og ég hef ekkert í hendi til marks um að staðan hafi eitthvað breyst hvað þetta snertir.“ Það er með miklum ólíkindum að Þorgerður Katrín fullyrði að við getum náð fullum yfirráðum í sjávarútvegi og landbúnaði. Og komi til þess að það takist ekki, samningaviðræðum verði hætt eða þjóðin felli jafnvel aðildarsamninga á síðari stigum, er ljóst að við höfum bakað okkur stórkostlegt tjón með þessu gönuhlaupi. Þráhyggja Þorgerðar Katrínar kostar okkur ekki bara peninga. Hún klýfur þjóðina, tekur fókus af bráðnauðsynlegum innanríkismálum á borð við vexti og verðbólgu og getur bakað okkur margvíslega erfiðleika í samskiptum okkar við nágrannaþjóðir bæði í austri og vestri. Þessar undanþágur, sem Þorgerður Katrín þykist geta sótt, eru ekki í boði. Það liggur í augum uppi. Í grein sinni útskýrir Steingrímur hvers vegna: „Mikilvægt er að átta sig á að samningssvigrúm ESB er afar takmarkað. Það er ekki af illvilja eða sökum þess að ýmsir í Brussel myndu ekki gjarnan vilja fá Ísland sem fullgilt aðildarríki sem þeir geta sig lítið hreyft. Það er baklandið í núverandi aðildarríkjum sem býður ekki upp á það. Varanlegar undanþágur fyrir nýtt aðildarríki frá reglum sem núverandi meðlimir klúbbsins hafa með súru og sætu þurft að kyngja er afar ólíkleg niðurstaða samningsviðræðna, en um leið eina sjáanlega leiðin til þess að við getum gerst aðilar.“ Að lokum ráðleggur Steingrímur ríkisstjórninni heilt og segir: „Mínar áhyggjur eru ekki síst þær, góðir landsmenn, að verði lagt upp í þennan leiðangur muni hann enda í útideyfu, annað hvort lognast út af eða enda með samningi sem Íslendingar geti ekki sætt sig við og kolfelli. Færi svo væri verr af stað farið en heima setið og yrði væntanlega ávísun á ansi súr samskipti við ESB um árabil þar á eftir. Spyrjið Norðmenn.“ Ég tek heils hugar undir með Steingrími J. sem einn örfárra Íslendinga hefur persónulega reynslu af hinu ómögulega: Að reyna að beygja ESB að íslenskum skilyrðum og sérþörfum. Það er einfaldlega ekki í boði. Þess vegna segir hann nei. Vonandi a ð vel sé á hann hlustað. Guðni Ágústsson, fv. alþingismaður og ráðherra. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Tilbúin til samtals við stjórnvöld“ Sá besti á HM fer til Katalóníu Aðsend grein: Dugar sæti við borðið? Aðsend grein: Er eftirspurn eftir 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun með ESB-aðild? Aðsend grein: Persónuleg reynsla Steingríms J. af ESB-viðræðum talar skýru máli Umræðan Eitt lag enn Dugar sæti við borðið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Inga: „Þetta er fámennur gagnrýninn hópur“ Myndu mæta og „klára málið fyrir hádegi“ Versta umferðarslys Ungverjalands í 23 ár Getur farið á hvorn veginn sem er Mest lesið Í gær Í vikunni Segir mannát hreinan uppspuna Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu „Reyðarjárn“ úr langreyði Hiti allt að 20 stigum Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ „Ég hef ekki trú á ríkisstjórninni í einu né neinu“ „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Nýjast á mbl.is » „Tilbúin til samtals við stjórnvöld“ Sá besti á HM fer til Katalóníu Aðsend grein: Dugar sæti við borðið? Aðsend grein: Er eftirspurn eftir 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun með ESB-aðild? Aðsend grein: Persónuleg reynsla Steingríms J. af ESB-viðræðum talar skýru máli Umræðan Eitt lag enn Dugar sæti við borðið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dregur úr æfingum vegna sambandsins við Kim Kolrassa krókríðandi reimar á sig skóna 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Mest lesið Í gær Í vikunni Segir mannát hreinan uppspuna Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu „Reyðarjárn“ úr langreyði Hiti allt að 20 stigum Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ „Ég hef ekki trú á ríkisstjórninni í einu né neinu“ „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys