Guðni Valur Guðnason komst ekki í úrslit kringlukastskeppninnar á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham. Guðni átti eitt gilt kast í forkeppninni sem mældist 57,59 m en hefði þurft að kasta 62,20 m eða lengra til að komast meðal tólf efstu og þar með í úrslit. Guðni Valur endaði í 20. sæti á EM, sem er hans fimmta Evrópumót. Enginn íslenskur karl hefur keppt oftar á EM utanhúss í frjálsíþróttum. Eini Íslendingurinn sem hefur keppt oftar á EM er spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir Annerud sem fór sex sinnum á EM. Guðni Valur Guðnason lauk keppni í 20. sæti í kringlukasti á EM í frjálsíþróttum í dag og kemst því ekki í úrslit. Hann er svekktur en þó þakklátur fyrir að vera heill heilsu og stefnir ótrauður áfram veginn. „Mér fannst ég vera í góðum fíling, en þetta small einhvern veginn ekki í dag. Síðasta kastið var best en ég fékk ekki að sjá hversu langt það hefði farið fyrst það fór í búrið,“ sagði Guðni Valur við RÚV eftir að hafa lokið keppni á EM í Birmingham í dag. Síðasta kastið best en þó ógilt Fyrsta kast Guðna var ógilt, en annað kastið vel heppnað, en bara ekki nógu langt. Það mældist 57,79 m sem skilaði honum í 20. sæti en 12 efstu keppendurnir komust í úrslit. „Fyrsta kastið var bara lélegt, en samt ekki langt frá því að vera í lagi. Það eru bara smáatriði hér og þar, tímasetningar, sem er munurinn á því að kasta 55 eða 62, 63 metra plús. Annað kastið var svo betra, en þar missti ég kringluna þó aðeins úr höndunum á mér. Þriðja kastið var svo best, en fór í búrið.“ Guðni Valur Guðnason lauk keppni í 20. sæti í kringlukasti á EM í frjálsíþróttum í dag og kemst því ekki í úrslit. Hann er svekktur en þó þakklátur fyrir að vera heill heilsu og stefnir ótrauður áfram veginn. En er erfitt að ná að stilla sig af þannig að ná mýkt í köstin en þó krafti? „Já og nei. Það ætti nú að vera komið hjá mér eftir öll þessi ár en maður þarf samt einhvern veginn að læra þetta upp á nýtt á hverju ári,“ sagði Guðni Valur. Vantaði fleiri köst undir beltið Tólfti og síðasti keppandinn inn í úrslit kastaði 62,19 m sem er á þeim slóðum sem Guðni Valur hefur kastað frekar stöðugt í sumar. „Þetta er mjög svekkjandi. Ég hef bara átt leiðinlegt sumar, því ég hef ekki kastað vel á neinu móti. Mörg kastanna þar hefðu þó dugað í úrslit hér á EM. En svona er þetta víst. Maður getur ekkert fengið það besta út úr sér á stórmótum þó maður vilji það alltaf. Ég reyndi mitt besta og er í góðu formi. En svo er spurning hvort ég sé ekki með nógu mörg köst á bakinu eftir veturinn. Ég hef þurft að dansa aðeins í kringum meiðsli síðustu ára og því ekki náð að kasta nógu oft á hverri æfingu. Við byrjuðum bara á því að taka eitt kast á hverri æfingu síðasta haust, þannig ég ætti bara að þakka fyrir það að vera heill núna. Það er góð tilbreyting frá síðasta EM allavega, þar sem ég meiddist í upphitun.“ Ekki nóg að kasta vel á æfingum En í hverju þarf Guðni þá að vinna í á næstunni til að ná því besta úr sér í keppni á næstu stórmótum? „Það er bara að halda áfram vinnunni. Núna fer ég heill inn í uppbyggingartímabilið heill, sem var alls ekki raunin í fyrra. Það er vonandi herslumunurinn. Ég næ þá að taka miklu fleiri köst í gegnum það tímabil og get æft miklu betur. Ég flutti auðvitað út til Svíþjóðar hálfmeiddur og hef ekki náð að klára heilt tímabil þar meiðslalaus þannig séð, hvorki uppbyggingartímabil eða keppnistímabil fyrr en núna. Þannig mig vantar bara fleiri köst til að læsa inn tæknibreytingunum sem við höfum verið að vinna í úti í Svíþjóð. Þær eru góðar og ég hef kastað mjög vel á æfingum og betur en ég gerði og stöðugra. En það er bara á æfingum, það þarf líka að gera þetta í keppni.“ Er þetta þá bara herslumunur sem Guðna vantar upp á, til að vera í úrslitum á stórmótum sem þessu? „Já, það hefur bara vantað þennan herslumun í allt sumar til að allt smelli. Þetta hefur bara verið fínt, en ekki meira en það. Á sama tíma er erfitt að kvarta fyrst ég er ekki meiddur, en svo hefur þetta ekki dottið í ár. En ég hef tvö ár í viðbót fram að næstu Ólympíuleikum og það er stóra markmiðið núna að taka þetta með stæl eftir að ég flutti gagngert til Svíþjóðar til að ná því besta úr mér. Ég vil því klára þetta vel fram að næstu Ólympíuleikum,“ sagði Guðni sem hefur mikla trú á því að hann verði meðal keppenda á leikunum í Los Angeles sumarið 2028.