Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Umbúðareglur falla illa að Íslandi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.8.2026 | 12:25 Umbúðareglur falla illa að Íslandi Saltfiski pakkað í Grindavík. Saltfiskinn má flytja í pappaöskjum en ferskan fisk verður helst að senda til kaupenda í frauðplastkössum ef tryggja á öryggi og gæði vörunnar. Að endurnýta frauðplastöskjur er illgerlegt. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Kosningastjóri SJÁ var starfsmaður ráðuneytisins Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Ábati við ESB meiri en kostnaður » Fleiri tengdar fréttir Líkt og komið hefur fram í umfjöllun Morgunblaðsins undanfarna tvo daga er ljóst er að ný umbúðareglugerð Evrópusambandsins á eftir að hafa margvísleg áhrif á íslenskan útflutning til Evrópu. Nýju reglurnar munu m.a. snerta sjávarútveginn en erfitt er að sjá hvernig greininni á að takast að finna heppilegar umbúðalausnir sem fullnægja metnaðarfullum markmiðum ESB. Hildur Hauksdóttir er sérfræðingur í umhverfismálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Hún segir umbúðareglugerðina, sem tók gildi hjá ESB-ríkjunum í gær, verða innleidda í áföngum. Þar er m.a. kveðið á um að árið 2030 verði því markmiði náð að endurnýta 40% allra þeirra frauðplastkassa sem notaðir eru í flutninga á ferskum fiski. Árið 2050 á þetta hlutfall að vera komið upp í 70%. „Reglugerðin hefur verið lengi í vinnslu hjá Evrópusambandinu og þær kvaðir sem henni fylgja verið að skýrast smám saman. Það var í raun ekki fyrr en á síðasta ári sem að fór að koma vel í ljós hvað umbúðareglurnar myndu þýða fyrir sjávarútveginn og fóru fyrirtæki í Evrópu strax að hafa miklar áhyggjur af því í hvað stefndi,“ útskýrir Hildur en SFS var fengið til að taka þátt í samstarfi hagsmunasamtaka þvert á Evrópu til að reyna að finna ásættanlega lausn og vonandi fá einhverjar tilslakanir varðandi frauðplastkassana. Stefnir í mikla flækju Frauðplast þykir henta einstaklega vel til flutninga á ferskum fiski enda er efnið létt, einangrar mjög vel, þolir raka og ver fiskinn á langri flutningsleið. Tiltölulega auðvelt er að steypa frauðplastkassana og hérlendis eru nokkur fyrirtæki sem sjá um að framleiða kassana fyrir sjávarútveginn. Vandinn við frauðplastið er þó sá að vegna matvælaöryggis eru kassarnir eru í reynd einnota þegar þeir eru notaðir utan um ferskan fisk. „Frauðplastið er endurvinnanlegt og t.d. notað sem hráefni í einangrun á húsum og margt fleira. Það getur verið óhagkvæmt að safna plastinu saman og koma því til endurvinnslu – nema þar sem búnaður er til staðar til að þjappa plastinu en þá verður endurvinnslan minna mál,“ útskýrir Hildur. Þó hægt sé að endurvinna kassana má gera ráð fyrir að sú krafa, að búin verði til endurnýtingarhringrás fyrir frauðplastkassa sem flytja ferskan fisk, sé ekki endilega heppileg lausn. „Reglugerðin gerir ráð fyrir því að tilteknu hlutfalli þessara kassa verði safnað saman og þeir nýttir aftur til að flytja fisk á markað en fyrir Ísland gæti það orðið æði snúið í framkvæmd,“ segir Hildur. „Það myndi þurfa að koma upp kerfi til að fylgja kössunum eftir um Evrópu, safna þeim saman eftir notkun og flytja svo alla leið aftur til Íslands. Þar þyrfti síðan að þrífa kassana, sótthreinsa þá og geyma þangað til þeir kæmust aftur í notkun, og ólíklegt að þetta ferli allt saman skilaði þeim ávinningi fyrir umhverfið sem stóð til með Evrópureglugerðinni.“ Hildur segir ekki útilokað að finna megi raunhæfar leiðir til að endurnýta einhvern hluta frauðplastumbúða sjávarútvegsfyrirtækja á meginlandi Evrópu, eða finna einhverja aðra lausn sem nýtist framleiðendum þar. „En á Íslandi erum við háð því að senda okkar fisk á markað með flugi og skipi. Við erum að framleiða viðkvæma matvöru í hæsta gæðaflokki sem ferðast að meðaltali 2.500 km leið til kaupenda í Evrópu. Frauðplastið er ekki bara umbúðir utan um fiskinn heldur hluti af þeirri kælikeðju sem verndar gæði okkar verðmætustu vöru.“ Hildur Hauksdóttir Lakari umbúðir myndu búa til ný vandamál Hildur minnir jafnframt á hve stórt hlutverk frauðplastkassarnir leika við að tryggja matvælaöryggi, lengja geymsluþol og draga úr matarsóun. „Reglur ESB virðast hafa verið samdar án þess að lagt hafi verið mat á það hver áhrifin verða fyrir virðiskeðju einnar stærstu útflutningsgreinar Íslands, og ekki útlit fyrir að hægt sé að finna aðra gerð umbúða sem leyst gæti frauðplastkassana af hólmi,“ segir hún. „Umbúðir með lakari eiginleika myndu síðan þýða að líftími vörunnar styttist og þar með eykst hættan á að matvæli fari til spillis og væri það sérkennilegt ef það yrði niðurstaðan af reglugerð sem samin var til að draga úr umhverfisáhrifum.“ Góðu fréttirnar eru þær að framkvæmdastjórn ESB virðist hafa hlustað á umkvartanir sjávarútvegsfyrirtækja í álfunni. Þá ekki síst áhyggjur framleiðenda af því að metnaðarfull umhverfissjónarmið kunni að stangast á við ekki síður mikilvægar kröfur um matvælaöryggi. „Í sumar óskaði framkvæmdastjórnin eftir því við Matvælaöryggisstofnun Evrópu, EFSA, að leggja sérstakt mat á hvort það ógnaði matvælaöryggi að knýja fram endurnotkun á frauðplastkössum og er niðurstöðu að vænta á næsta ári. Niðurstaða EFSA gæti mögulega orðið grundvöllur þess að umbúðir utan um ferskan fisk verði undanþegnar kröfum reglugerðarinnar um endurnotkun eins og þær eru í dag en þangað til þurfum við að bíða og sjá hvað gerist. Flækjustig Til að uppfylla kröfur umbúðareglugerðarinnar þyrfti að endurnýta 30% frauðplastkassa árið 2030 Það þarf þá að safna kössunum saman, senda aftur til Íslands, þvo þá og sótthreinsa Alls óvíst er hvort fyrirmæli umbúðareglugerðar ESB samræmist kröfum um matvælaöryggi Frauðplast hentar mjög vel undir ferskan fisk og betri kostir virðast ekki í boði Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Kosningastjóri SJÁ var starfsmaður ráðuneytisins Steingrímur segir lítið hafa breyst og segir nei Ábati við ESB meiri en kostnaður » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Umbúðareglur falla illa að Íslandi Liverpool gæti bætt við tveimur kantmönnum Gangandi vegfarendur drógu úr álagi Vestmannaeyjaskipin með góðan afla Umræðan Atvinnuleysi ungs fólks vex mikið – tökum á því strax! Viðreisnarverkfræðingur skemmir skrúðgönguna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt klárt fyrir almyrkvann í Mosfellsbæ Segir Bandaríkin hafa fulla stjórn á Hormússundi Óspennandi að horfa til himins nema gegnum glæra regnhlíf „Klikkuð“ umferð á Hellissandi og pylsur rjúka út Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland minnkar við sig Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Gestir sáu almyrkvann: „Nú er bara að fagna“ Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn Fluttur til aðhlynningar eftir fall Myndir: Almyrkvinn sást vel frá Látrabjargi Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Þurfti lögreglu eftir að hafa læst sig inni í bíl Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Maðurinn sem lést var íslenskur „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Beint: Loksins komið að stóru stundinni Sólmyrkvi er hafinn Myndir: Almyrkva náð Skátaflokki vísað af móti Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Nýjast á mbl.is » „Böðullinn“ einn af tuttugu sem eru lausir Umbúðareglur falla illa að Íslandi Liverpool gæti bætt við tveimur kantmönnum Gangandi vegfarendur drógu úr álagi Vestmannaeyjaskipin með góðan afla Umræðan Atvinnuleysi ungs fólks vex mikið – tökum á því strax! Viðreisnarverkfræðingur skemmir skrúðgönguna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndaveisla: Margmenni á Ægisíðunni Segir Bandaríkin hafa fulla stjórn á Hormússundi Umbúðareglur falla illa að Íslandi Allt klárt fyrir almyrkvann í Mosfellsbæ Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland minnkar við sig Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Gestir sáu almyrkvann: „Nú er bara að fagna“ Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn Fluttur til aðhlynningar eftir fall Myndir: Almyrkvinn sást vel frá Látrabjargi Yfir 70 prósent á móti aðildarviðræðunum Þurfti lögreglu eftir að hafa læst sig inni í bíl Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Maðurinn sem lést var íslenskur „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Beint: Loksins komið að stóru stundinni Sólmyrkvi er hafinn Myndir: Almyrkva náð Skátaflokki vísað af móti Sögðu að mamma hefði ekki vaknað

Share this article