Fleiri en 40 bandarísk stórfyrirtæki hafa á síðustu mánuðum greint frá tollendurgreiðslum upp á samtals 9,6 milljarða dala samkvæmt WSJ . Þar af hefur að minnsta kosti 2,1 milljarður dala þegar verið greiddur út. Endurgreiðslurnar hafa þegar haft veruleg áhrif á afkomu sumra fyrirtækja en umræða hefur myndast um það hvort endurgreiðslurnar muni skila sér áfram til neytenda. Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa fengið endurgreiðslu eru Apple, sem fékk tæplega 2,2 milljarða dala, Nike, sem fékk 986 milljónir dala, FedEx, sem fékk 800 milljónir dala, Amazon, sem fékk 640 milljónir dala og General Motors, sem fékk 500 milljónir dala. Bandaríska tollgæslan hafði í lok júlí fengið rúmlega 252 þúsund umsóknir um endurgreiðslu tolla sem Hæstiréttur Bandaríkjanna hafði dæmt ólögmæta. Umsóknir að fjárhæð 128,7 milljarðar dala höfðu verið samþykktar til endurgreiðslu. Sjá einnig Tollar hægja ekki á kínverskum útflutningi Apple segir nú að endurgreiðslurnar hafi aukið hagnað fyrirtækisins um 11 sent á hvern hlut á síðasta ársfjórðungi, sem jafngildir um 5% af hagnaði félagsins á hvern hlut á tímabilinu. GE HealthCare fékk sömuleiðis 107 milljóna dala endurgreiðslu og á von á 38 milljónum til viðbótar. Hver bar kostnaðinn? Endurgreiðslurnar hafa vakið upp umræðu um hver hafi í raun borið kostnað tollanna. Fyrirtæki eru nú að fá endurgreiðslu á tollum sem greiddir voru til stjórnvalda en sá kostnaður var að hluta til færður yfir á viðskiptavini í formi hærra vöruverðs. Ef fyrirtæki greiðir tíu dali aukalega í toll og hækkar síðan vöruverð um sömu upphæð þá er það neytandinn sem ber kostnaðinn. Sjá einnig Lögsækja Trump vegna nýrra tolla Fái fyrirtækið tollinn síðar endurgreiddan án þess að lækka vöruverð eða endurgreiða viðskiptavininum situr fyrirtækið eftir með ávinninginn. Sum fyrirtæki ákváðu þó að taka allan eða hluta af kostnaðinum á sig og geta endurgreiðslurnar samsvarað þeim kostnaði. Nokkur fyrirtæki hafa þegar ákveðið að endurgreiða hluta kostnaðarins til viðskiptavina. FedEx mun til dæmis greiða hlut af 800 milljóna dala endurgreiðslu félagsins til viðskiptavina og mun Costco gera slíkt hið sama. Framleiðslufyrirtækið IDEX hefur sömuleiðis fengið rúmlega 20 milljónir dala endurgreiddar og gerir nú ráð fyrir að greiða sínum viðskiptavinum 14,7 milljónir til baka. Amazon segist hins vegar aðeins geta rakið tollkostnaðinn til einstakra viðskiptavina í takmörkuðum fjölda tilfella. Þeim viðskiptavinum verði endurgreitt þegar félagið fær peningana frá stjórnvöldum en að öðru leyti hyggst Amazon nýta endurgreiðslurnar til að fjárfesta áfram í lægra verði til viðskiptavina.