Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Himinháar endurgreiðslukröfur vegna tolla

Read Full Article →

Stjórnvöld í Bandaríkjunum standa frammi fyrir því að endurgreiða samtals 166 milljarða dala, eða ríflega 20.800 milljarða íslenskra króna, vegna tolla sem dæmdir voru ólöglegir fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna í febrúarmánuði þessa árs. Í maí og júní endurgreiddi ríkið 71 milljarð dala og hefur nú alls endurgreitt 81 milljarð dala í endurgreiðslur vegna tolla á núverandi fjárhagsári sem hófst í október sl. Í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun er fjallað ítarlega um tollaendurgreiðslurnar. Íslenski hjólaframleiðandinn Lauf Cycles er meðal fyrirtækja sem hafa fengið tollana að fullu endurgreidda. Sjá einnig Fengu Trump-tolla endurgreidda Í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar var bandarískum tollyfirvöldum síðar gert að endurgreiða tollana til allra þeirra innflytjenda sem setið hefðu undir þeim á tímabili álagningarinnar, með úrskurði sérdómstóls um alþjóðaviðskipti (Court of International Trade, CIT). Bandarísk tollyfirvöld hafa komið á fót sérstöku rafrænu endurgreiðslukerfi þar sem innflytjendur geta sótt um endurgreiðslu þeirra innflutningstolla sem síðar voru felldir úr gildi. CAPE-endurgreiðslukerfinu er ætlað að einfalda og hraða afgreiðslu mála. Til að eiga rétt á endurgreiðslu þurfa fyrirtæki meðal annars að hafa greitt tollana sem skráður innflytjandi, leggja fram gögn um viðkomandi flutningssendingar og uppfylla þau skilyrði sem yfirvöld hafa sett. Samkvæmt leiðbeiningum bandarískra tollyfirvalda tekur afgreiðsla einfaldari mála að jafnaði 60 til 90 daga frá því umsókn hefur verið samþykkt. Fyrirtækin þurfa sjálf að hefja ferlið og fylgja þeim stjórnsýsluleiðum sem bandarísk tollyfirvöld hafa sett upp. Fyrsti áfangi kerfisins nær einkum til einfaldari mála, en flóknari mál, svo sem eldri tollafærslur eða ágreiningsmál, geta tekið mun lengri tíma og í sumum tilvikum kallað á frekari málsmeðferð. Fréttin er hluti af lengri umfjöllun í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun.

Share this article