Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kvennalandsliðið í 22. sæti á Evrópumótinu

Read Full Article →

Íslenska kvennalandsliðið í áhaldafimleikum lauk í dag keppni í undankeppni EM í Zagreb. Liðið hafnaði í 22. sæti af 32 liðum. Landslið Íslands skipuðu Stjörnukonan Auður Anna Þorbjarnardóttir og svo fjórar úr Gerplu; Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Kristjana Ósk Ólafsdóttir, Rakel Sara Pétursdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir sem keppti með brotinn fingur í dag en gerði samt vel á tvíslá. F.v.: Rakel Sara Pétursdóttir, Kristjana Ósk Ólafsdóttir, Auður Anna Þorbjarnardóttir, Thelma Aðalsteinsdóttir og Lilja Katrín GunnarsdóttirFimleikasamband Íslands Á heimasíðu Fimleikasambandsins má lesa nánar um keppni dagsins og viðtöl við Thelmu og Lilju Katrínu. Sýnt verður beint frá úrslitahlutum mótsins á RÚV. Klukkan 12:55 á laugardag og 13:55 á sunnudag.

Share this article