Í dag varð ljóst að frammistaðan hjá Degi Kára Ólafssyni og Ágústi Inga Davíðssyni í forkeppninni á EM í gær hefði tryggt þeim sæti á heimsmeistaramótinu í október. Áður hafði Lilja Katrín Gunnarsdóttir fengið HM sæti í kvennaflokki og Thelma Aðalsteinsdóttir bættist sömuleiðis við í dag. Guðmundur Brynjólfsson fimleikasérfræðingur RÚV segir þetta í takt við væntingar fyrir EM. Árangur Íslands í takt við væntingar „Þetta er mjög svipað og við bjuggumst við, að ná inn tveimur körlum, Degi Kára og Ágústi Inga, og svo Lilju Katrínu einni inn hjá konunum og svo er Thelma núna komin inn á gólfið. Hún fær aðeins að keppa í gólfæfingum á HM, þannig að þetta er í raun eins og við vildum. Liðin í heild eru svo á svipuðum stað og þau hafa verið, í 22. og 23. sæti. Ég hefði þó viljað sjá þau nær 17. eða 18. sæti eða svoleiðis,“ segir Guðmundur. Ísland mun eiga fjóra keppendur á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum í Rotterdam í október en það varð ljóst í dag. Úrslit á stökum áhöldum á EM hefjast á morgun. RÚV sýnir beint frá EM karla í fimleikum í Zagreb næstu þrjá daga og á morgun hefst bein útsending rétt fyrir fjögur. Kovtun orðinn Króati og keppir því á heimavelli „Þetta verður náttúrulega mjög spennandi því að Rússarnir eru komnir inn aftur, eins og við sáum á EM kvenna í síðustu viku. Það gerir keppnina mun erfiðari fyrir alla hina. Svo er Ilya Kovtun, sem vann með minnsta mögulega mun í fjölþrautarkeppninni í gær, nú farinn að keppa fyrir Króatíu í stað Úkraínu. Hann er því að keppa á sínum nýja heimavelli þannig að það verður spennandi að fylgjast með honum. Svo eru Bretarnir í hefndarhug eftir að hafa orðið á eftir Rússunum í undankeppninni. Joe Fraser, sem flestir spáðu sigri í fjölþrautinni, varð sjöundi þar, því hann datt tvisvar á gólfinu.“ Rússarnir koma mjög sterkir til baka En hverju breytir það í fimleikunum að Rússar hafa nú fengið þátttökurétt aftur á alþjóðlegum mótum? „Það gerir allt miklu erfiðara fyrir hina, eins og með að ná sæti á HM. Það voru þrettán sæti í boði og eru það áfram, en í rauninni bara tólf núna því Rússarnir eru frekar öruggir með sitt sæti. Svo eru þeir með mikið af úrslitafólki sem gerir allt erfiðara fyrir hina. En Rússarnir eru líka að koma mun sterkari til baka en maður bjóst við. Eftir svona langa fjarveru frá alvöru keppni veit maður ekkert hvernig standið er. En þau hafa komið inn á EM í brjáluðu formi,“ segir Guðmundur.