Oddur Einarsson yfirverkstjóri í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað segir að makríllinn sem unninn hefði verið til þessa á vertíðinni hefði verið einstaklega gott hráefni. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar þar sem rætt er við Odd. „Kvótinn er minni en verið hefur og skipin leggja alla áherslu á að koma með gott hráefni að landi. Þau toga í stuttan tíma og farmarnir eru minni en áður. Þá er aflinn mjög vel kældur um borð. Þetta þýðir að hráefnið er einstaklega ferskt og gott,“ segir hann. Mestallur aflinn heilfrystur Þá segir Oddur að mestallur aflinn hafi verið heilfrystur. „Áhersla er lögð á að nýta hvern sporð eins vel og unnt er,” segir hann á svn.is . Og nægum verkefnum er að sinna í fiskiðjuverinu. Segir frá því að lokið hafi verið við að vinna kolmunna úr Bjarna Ólafssyni AK í nótt og að Margrét EA hafi verið væntanleg með um 650 tonn af makríl úr Smugunni um hádegi í dag. Gott veiðiskot í Smugunni í gær „Oddur Einarsson yfirverkstjóri sagði að kolmunnavinnslan hefði gengið vel. Fiskurinn hefði verið stór og góður og hentað ágætlega til frystingar. Þá sagði hann að gott veiðiskot hefði komið á makrílmiðunum í Smugunni í gær þannig að útlit væri fyrir annir í fiskiðjuverinu á næstunni,“ segir yfirverkstjórinn á vef Síldarvinnslunnar .