Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Fimleikar, sund og Sindri og Baldvin í úrslitum

Read Full Article →

Það er nóg um að vera í Evrópu þessa dagana og í dag halda bæði Evrópumótin í sundi og frjálsíþróttum áfram. Auk þess er Evrópumótið í áhaldafimleikum hafið í Zagreb í Króatíu. Dagskráin 15. ágúst 07:25 EM í sundi - morgunhluti - RÚV 09:20 EM í frjálsum - morgunhluti - RÚV 2 12:55 EM í fimleikum - RÚV 16:25 EM í sundi - kvöldhluti - RÚV 18:40 EM í frjálsum - kvöldhluti - RÚV 2 Sindri Hrafn Guðmundsson mun keppa í úrslitum spjótkastsins á Evrópumótinu í frjálsum í Birmingham í kvöld. Sindri var ellefti inn í úrslitin þar sem keppendur verða tólf talsins. Sindri kastaði 79,21 metra í forkeppninni á fimmtudag. Lengsta kast hans í ár er 81,90 metrar en lengst hefur hann kastað 82,55 metra. Íslandsmetið í spjótkasti á Einar Vilhjálmsson, það er 86,80 metrar og var sett árið 1992. Sindri er ekki eini Íslendingurinn sem keppir til úrslita á frjálsíþróttabrautinni í Birmingham í kvöld. Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon mun hlaupa í úrslitum í 10.000 metra hlaupi, þar var engin forkeppni heldur keppa allir 25 í einu sem fengu þátttökurétt á mótinu. Besti tími Baldvins í 10.000 metrum er 28 mínútur og 57,17 sekúndur frá árinu 2023, Hlynur Andrésson, sem keppir í maraþoni á EM á morgun, á hins vegar Íslandsmetið. Sund og fimleikar líka á dagskrá Ísland á líka keppendur á Evrópumótinu í sundi sem fram fer í París þessa dagana. Fjórir Íslendingar synda í undanrásum í dag. Símon Elías Statkevicius syndir 50 metra skriðsund, Guðmundur Leo Rafnsson syndir 100 metra baksund, Birgitta Ingólfsdóttir 50 metra bringusund og loks syndir Birnir Freyr Hálfdánarson í 200 metra fjórsundi. Þetta eru síðustu einstaklingsgreinarnar hjá Íslendingunum á mótinu að þessu sinni en íslenska karlasveitin mun synda í undanrásum 4x100 metra fjórsundsins á sunnudagsmorgun. Evrópumótið í áhaldafimleikum fer svo fram í Zagreb í Króatíu þessa dagana. Keppt hefur verið í kvennaflokki í vikunni þar sem íslenska kvennalandsliðið varð meðal annars í 22. sæti í liðakeppninni. Í dag er komið að úrslitum á einstökum áhöldum en Evrópumeistarar í fjölþraut voru krýndir eftir undankeppnina. Angelina Melnikova frá Rússlandi, sem keppti þó undir hlutlausum fána, varð Evrópumeistari þar og verður í úrslitum á öllum fjórum áhöldunum í dag. Keppni í karlaflokki fer fram í næstu viku en þar munu Íslendingar líka eiga fulltrúa í undankeppninni. Bein útsending frá úrslitunum á einstökum áhöldum í dag hefst klukkan 12:55 á RÚV.

Share this article