Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sindri Hrafn kastar í úrslitum á EM

Read Full Article →

Spjótkastarinn Sindri Hrafn Guðmundsson kastaði í undanrásum á EM í Birmingham í dag. Vitað var að allir sem köstuðu yfir 82 metra færu beina leið í úrslit eða 12 efstu keppendurnir. Fyrsta kast dagsins var upp á 77,49 metra og ólíklegt að það myndi duga. Þá skrikaði honum fótur í öðru kastinu og steig yfir línu og kastið var því ógilt. Þriðja og síðasta kastið var 79,21 metri. Sindri endaði áttundi í riðlinum og beið milli vonar og ótta eftir síðar kasthópnum. Eftir 36 köst hjá 12 kösturum í seinni hópnum var lukkan með Sindra Hrafni í liði því hann endaði ellefti yfir alla keppendur og er því á leið í úrslitin. Þau fara fram í kvöldhlutanum á laugardaginn. Sindri Hrafn er þriðji Íslendingurinn sem keppir í úrslitum mótsins. Besta kast Sindra Hrafns í ár er 81,90 metrar. Þá hefur hann verið að kasta vel undanfarið og fór stórhuga inn í keppnina. Hér má sjá köst Sindra Hrafns. Sigurbjörn Árni Arngrímsson lýsir. Sindri Hrafn Guðmundsson keppti í undanrásum spjótkasts á EM í Birmingham í dag. Lengsta kast Sindra Hrafns var 79,21 og það skilaði honum inn í úrslitahlutann. Hann kastar í úrslitum á laugardagskvöld.

Share this article