Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sumarið gott hjá hótelunum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 2.9.2026 | 11:05 Sumarið gott hjá hótelunum Hagstofa Íslands birti fyrir helgi nýjar tölur um gistinætur á hótelum. Ljósmynd/Colourbox Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Björgvin Jóhannesson, formaður Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu (FHG), segir útlit fyrir að bókunarstaðan á hótelum verði svipuð í haust og í fyrrahaust. „Það er mín upplifun út frá stöðunni á þeim tveimur hótelum sem ég rek,“ segir Björgvin sem er hótelstjóri á Hótel Selfossi og Hótel Southcoast á Selfossi. „Það sama hef ég heyrt frá öðrum hótelrekendum, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, en eftir hæga byrjun á árinu og erfiðan fyrri hluta árs hefur sumarið komið vel út og hótelin náð að rétta úr kútnum. Sú staða hangir fram á haustið en september og október eru á pari við árið í fyrra og á sumum hótelum er staðan jafnvel betri,“ segir Björgvin. Óvissa um veturinn „Svo er meiri óvissa um framhaldið en það hefur sitt að segja að ferðamenn eru farnir að bóka með minni fyrirvara en áður. Veturinn er sums staðar smá áhyggjuefni. Við hefðum viljað að bókunarstaðan fyrir veturinn væri betri en erum vongóð um að það komi kippur í bókanir í kjölfar aukinnar markaðssetningar hjá Íslandsstofu,“ segir Björgvin en Íslandsstofa fékk fyrr í sumar aukið fé til kynningar á Íslandi sem áfangastað fyrir ferðamenn. „Svo bindum við miklar vonir við að beint flug milli Íslands og Kína sem hefst í október verði öflug innspýting á markaðinn.“ Björgvin Jóhannesson, formaður Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu mbl.is/Styrmir Kári Hagstofa Íslands birti fyrir helgi nýjar tölur um gistinætur á hótelum. Samkvæmt þeim eru gistinæturnar álíka margar á fyrstu sjö mánuðum ársins og sömu mánuði í fyrra (sjá graf). Þá voru gistinætur í júlí álíka margar og í júlí í fyrra eða rúmlega 648 þúsund. Hefur fjölgað um fimmtung Athygli vekur að gistinætur í janúar til júlí voru ríflega 21% fleiri í ár en þessa mánuði 2018, sem var metár í ferðaþjónustu fyrir covid. Það helst í hendur við fjölgun hótelherbergja en skv. Hagstofunni voru 12.696 hótelherbergi á landinu í júlí en 10.460 herbergi í sama mánuði 2018, sem er ríflega 21% aukning. Til að setja fjölgunina í samhengi samsvarar hún t.d. rúmlega tíföldum fjölda herbergja á Hótel Sögu, sem hefur hætt rekstri, en þar voru 209 herbergi undir lokin. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Azealia Banks heldur tónleika á Íslandi Liverpool reyndi við bakvörð Chelsea Heiðar: Rógsherferð gegn mér Sumarið gott hjá hótelunum „Búðin var full af reyk“ Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umsókn Íslands enn í gildi að mati ESB Upptaka brotaþola týndist hjá lögreglu Heiðar: Rógsherferð gegn mér „Þetta er ekki hollt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Ráðherra vill taka „smátíma“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi Bruni á Laugavegi: Tveir fluttir á bráðadeild Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Ríkisstjórnin valdamesta aflið Ríkisstjórnin fallin yrði kosið nú Allt tiltækt slökkvilið kallað út Meira til leigjenda en til kaupenda 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Nýjast á mbl.is » Azealia Banks heldur tónleika á Íslandi Liverpool reyndi við bakvörð Chelsea Heiðar: Rógsherferð gegn mér Sumarið gott hjá hótelunum „Búðin var full af reyk“ Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt þetta tal með „kassann út“ „Betri bragur“ að afturkalla ESB-umsóknina formlega „Stemningin var hræðslan við breytingar“ Ferðabann við garðana því þeir eru „vinnusvæði“ Mest lesið Í gær Í vikunni Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Ráðherra vill taka „smátíma“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi Bruni á Laugavegi: Tveir fluttir á bráðadeild Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Ríkisstjórnin valdamesta aflið Ríkisstjórnin fallin yrði kosið nú Allt tiltækt slökkvilið kallað út Meira til leigjenda en til kaupenda 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili

Share this article