Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til Neskaupstaðar í dag og er að landa. Rætt er við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra á heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Við erum með 90 tonn og það verður að segjast að það var fínasta kropp í þorski í túrnum. Við hófum veiðar á Þórsbanka en færðum okkur síðan yfir á Verkamannabankann þar sem mest af þorskinum fékkst. Við reyndum einnig við ýsu en það gekk heldur erfiðlega. Það var leitað að ýsunni alveg frá Breiðdalsgrunni og norður á Gletting með heldur litlum árangri. Það var fínasta veður í öllum túrnum og ekki yfir neinu að kvarta í þeim efnum. Gert er ráð fyrir að skipið haldi á ný til veiða í kvöld,” sagði Hjálmar Ólafur.