Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til löndunar í Neskaupstað í gær. Aflinn var um 100 tonn, langmest þorskur og aðeins ýsa og ufsi með. Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri var nokkuð sáttur við túrinn en kvartaði þó undan því að illa gengi að finna ýsu um þessar mundir. „Við vorum að veiðum á Langabanka og Utanfótar og þar var þokkaleg þorskveiði. Við héldum síðan út á Papagrunn í leit að ýsu og vorum þar um tíma með litlum árangri. Það er spurning hvar ýsan heldur sig um þessar mundir. Þorskurinn sem við fengum er hinn fínasti. Veðrið í túrnum var ágætt en við fengum þó smákalda í einn dag. Það eru ekki margir togarar að veiðum hér fyrir austan núna þannig að það var býsna rúmt um okkur á miðunum,” sagði Einar Ólafur í samtali við tíðindamann Síldarvinnslunnar. Birtingur hélt á ný til veiða síðdegis í gær.