Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Magnús Ingi tekju­hæsti fjár­mála­stjórinn

Read Full Article →

Magnús Ingi Einarsson var tekjuhæsti fjármálastjóri landsins í fyrra samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar. Magnús er fjármálastjóri SKEL og tók jafnframt fyrr í ár við sem stjórnarformaður Fossa, en hann var með 8,3 milljónir á mánuði miðað við útsvarsskyldar tekjur. Emil Viðar Eyþórsson var næst launahæstur en hann var þar til fyrr í ár fjármálastjóri Hampiðunnar. Í dag er hann framkvæmdastjóri fjármálasviðs Hampiðjunnar. Guðrún Elsa Gunnars­dóttir kemur þar á eftir með 7,4 milljónir á mánuði í fyrra. Hún var rekstrar- og fjár­mála­stjóri Aztiq en lét af störfum fyrr í ár. Í dag er hún framkvæmdastjóri Flóka Invest, fjárfestingarfélags Róberts Wessman. Í heildina voru átta fjármálastjórar í úttekt Viðskiptablaðsins með meira en 5 milljónir á mánuði. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.

Share this article