Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Setja stefnuna á heimsmeistaramótið

Read Full Article →

Landsliðið skipa þeir Ágúst Ingi Davíðsson, Dagur Kári Ólafsson, Martin Bjarni Guðmundsson, Valgarð Reinhardsson og Jónas Ingi Þórisson. „Við erum ótrúlega spenntir,“ sagði Ágúst Ingi. „Undirbúningurinn er búinn að vera virkilega góður og við í liðinu erum bara virkilega peppaðir. Við ætlum að gera okkar besta.“ „Við erum búnir að vera lengi að undirbúa okkur,“ sagði Dagur Kári. „Við vorum að keppa á Norðurlandamótinu fyrir nokkrum vikum og ég held að við séum bara tilbúnir.“ Íslenska karlalandsliðið í áhaldafimleikum keppir í dag í undankeppninni á Evrópumótinu í Zagreb. Markmið liðsins er að fá þátttökurétt á HM. Skemmtilegra í liðakeppni Þrátt fyrir að einnig sé keppt til úrslita einstaklinga á Evrópumótinu er áherslan í ár meiri á liðakeppnina, nokkuð sem fellur íslensku landsliðsmönnunum vel í kramið. „Mér finnst það oft bara skemmtilegra,“ sagði Dagur Kári um liðakeppnina, „Það er svona meiri heild og meiri stemning á mótinu. Skemmtilegt líka að hafa sameiginlegt markmið.“ Valgarð æfir í Svíþjóð en hinir hafa æft saman alla daga í fimleikahúsi Gerplu og eru að sögn Ágústs Skýrt markmið „Við ætlum að reyna að komast inn á heimsmeistaramótið,“ segir Ágúst en Íslandi hefur aldrei tekist það áður. Liðið fékk brons á Norðurlandamótinu og var einungis rétt á eftir Noregi. „Ef allt fer eins og við óskum þá ættum við að geta komið liðinu inn á heimsmeistaramótið. Það væri sturlað, það væri ótrúlega gaman.“ „Við þurfum bara að halda okkur upp á áhöldunum,“ segir Ágúst um hvað þeir þurfi að gera til ná markmiðinu, „og lenda afstökkunum vel. Gera það sem við höfum verið að æfa hérna heima og þá ættum við að komast.“ „Maður veit aldrei,“ segir Dagur um möguleika Íslands. „Maður vill bara fara og gera sitt besta og hafa gaman.“ Karlalandsliðið keppir á milli 12:00 og 15:30 í dag og hægt verður að fylgjast með útsendingu á GymTV og úrslitum í SmartScoring . RÚV sýnir svo beint frá úrslitahlutum mótsins frá föstudegi til sunnudags.

Share this article