Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson munu keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum. HM fer fram í október í Rotterdam í Hollandi. Þetta varð ljóst eftir gott gengi þeirra Ágústs og Dags á Evrópumótinu í Zagreb í Króatíu sem stendur nú yfir. Ágúst, Dagur og Valgarð Reinhardsson kepptu fyrir Ísland á HM fyrir ári. Dagur varð þá sá fyrsti í sögunni til að komast í úrslit í fjölþraut. Aðeins 23 geta unnið sig inn á HM beina leið með árangri sínum á EM. Þetta er í fyrsta sinn sem Ágúst Ingi nær að vinna sér inn keppnisrétt á HM í gegnum EM. Dagur Kári náði því fyrir HM 2023 en komst þá inn sem varamaður í gegnum EM leiðina. Hann þurfti ekki að treysta á þá leið í þetta sinn, heldur tryggði sig beint inn. Lilja Katrín Gunnarsdóttir keppir einnig á HM í kvennaflokki.