Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tryggja sér tæplega hálfan milljarð

Read Full Article →

Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið SnerpaPower, þróar gervigreindarhugbúnað fyrir stórnotendur raforku, hefur tryggt sér 3,4 milljónir evra í nýrri fjármögnun. Fyrirtækið hyggst nýta fjármögnunina til sóknar á Evrópumarkað. Fjármögnunin skiptist í þrjár milljónir evra frá lúxemborgíska orkufyrirtækinu Encevo, sem leiðir fjárfestinguna, og 0,4 milljóna evra Vaxtar-styrk úr Tækniþróunarsjóði. Núverandi hluthafar, Crowberry Capital og BackingMinds, taka einnig þátt í hlutafjáraukningunni. Encevo veltir rúmlega þremur milljörðum evra á ári og starfar í Lúxemborg, Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu og Hollandi. SnerpaPower þróar gervigreindarhugbúnað sem tengir rekstur iðnfyrirtækja, raforkusamninga þeirra og raforkumarkaðinn saman í rauntíma. Markmiðið er að stórnotendur geti spáð fyrir um raforkuþörf sína og sjálfvirknivætt pantanir þegar innkaupastefna og raforkukaupasamningar (PPA) liggja fyrir. Þannig geta fyrirtækin lækkað raforkukostnað og skapað viðbótartekjur með sveigjanleika í notkun án þess að skerða framleiðslu. Hugbúnaðurinn er þegar í notkun hjá um 15 iðnverum á Norðurlöndunum sem samanlagt nota yfir 10 TWst af raforku á ári. Það samsvarar rúmlega 1% af heildarraforkunotkun iðnaðar í Evrópu, eða árlegri raforkunotkun um þriggja milljóna evrópskra heimila. Viðskiptavinir félagsins eru meðal annars málmframleiðendur, gagnaver og framleiðendur græns eldsneytis. SnerpaPower var stofnað á Íslandi og hefur þróað tækni sína í samstarfi við iðnfyrirtæki sem glíma við flóknar áskoranir í raforkunotkun og áætlanagerð.

Share this article