Nýsköpunarfyrirtækið Laki Power, sem þróar og framleiðir eftirlitsstöðvar til þess að fylgjast með ástandi háspennulína, hefur lokið 6 milljóna evra A-fjármögnun (e. Series A), eða sem nemur um 840 milljónum króna. Nýsköpunarsjóður NATO (e. NATO Innovation Fund, NIF) leiddi fjármögnunina. Um er að ræða fyrstu fjárfestingu sjóðsins – sem leitast við að efla stönduga sprota sem þróað hafa byltingarkenndar lausnir - á Íslandi. Vísisjóður í rekstri ReykVC, sem hét áður Eyrir Venture Management, tók einnig þátt í fjármögnuninni. Sjóðurinn REY III – Vöxtur var næst stærsti hluthafi Laka í lok síðasta árs með 28,3% hlut. Fyrirtækið segir að fjármögnunin verði nýtt í að bæta í framleiðslu og markaðssetningu á helstu vöru þess, LFX-MULTI, í Evrópu, Norður-Ameríku og Ástralíu, ásamt því að hraða þróun á næstu kynslóðar vörum. Laki Power var stofnað árið 2015 til að þróa tæknibúnað sem er hengdur upp á háspennulínur og fylgist nákvæmlega með ástandi þeirra. Tæknin gerir fyrirtækjum sem annast flutning og dreifingu raforku kleift að hafa nákvæmt eftirlit með ísingu, eldi og umferð fólks við línurnar í rauntíma. Fyrirtækið segir í tilkynningu að þrátt fyrir að raforkukerfið sé grunnstoð í nútímasamfélagi sé stærstur hluti raforkukerfa án vöktunar milli tengikerfa. Núverandi lausnir reiði sig ýmist á sólarorku eða rafhlöður sem dugi ekki til samfellds reksturs, eða reiðir sig aðeins að litlu leyti á orku úr raflínunni. Einkaleyfisvarin tækni Laki Power, LKX-MULTI vöktunarstöðin sem lögð er á raflínur, sækir hins vegar allt að 300W af afli beint frá raflínunum, eða allt að 100 sinnum meira en hefðbundnar lausnir. Transition Finance Network (TFN) var ráðgjafi Laka Power við fjármögnunina. Hluthafar Laka Power voru 13 í lok síðasta árs. Brunnur Vaxtarsjóður og REY III voru stærstu hluthafar félagsins með 28 eignarhlut hvor um sig. Óskar H. Valtýsson, stofnandi Laka Power, átti 13,9% hlut og Ósvaldur Kjartan Knudsen, framkvæmdastjóri félagsins, átti 12,8% hlut. Meðal annarra hluthafa er Silfurberg ehf., fjárfestingarfélag Friðriks Steins Kristjánssonar og Ingibjargar Jónsdóttur, sem átti 5% hlut í lok síðasta árs.