Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Blindi bletturinn

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 20.8.2026 | 10:17 Blindi bletturinn Gunnar Pálsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar hinn 29. ágúst nk. hefur sviðsljósinu af skiljanlegum ástæðum einkum verið beint að mögulegum aðildarsamningi Íslands og sambandsins. Þessi áhersla á tvíhliða þáttinn í samskiptum Íslands og ESB, svo sem spurninguna um hvort Ísland fengi sérlausn í sjávarútvegsmáum, er engu að síður þeim annmarka háð að hún veitir einungis takmarkaða yfirsýn yfir stærri leikmynd sem haft gæti veruleg áhrif á aðstæður Íslands sem aðila að sambandinu í framtíðinni. Hluti af þeirri leikmynd er að ESB er nú í fyrsta skipti í sögu sinni beinn aðili að styrjaldarátökum í Evrópu. Stigvaxandi þátttaka sambandsins í Úkraínustríðinu, sem ekki verður séð að muni leiða til ákjósanlegrar niðurstöðu fyrir Evrópuríkin, hefur þegar haft víðtæk áhrif á efnahagslega stöðu þeirra, samskipti innbyrðis og við umheiminn, en einnig stofnanir sambandsins og stjórnunarhætti. Þegar fjögur og hálft ár eru liðin frá því þau hófust hafa átökin breytt sambandinu og líklegt að þær breytingar muni um mörg ókomin ár setja mark sitt á það. Hinar efnahagslegu afleiðingar stríðsins fyrir Evrópu eru ekkert launungarmál. Bein útgjöld sem runnið hafa til vígbúnaðar og framfærslu úkraínska ríkisins soga til sín fjármuni sem annars væru notaðir innan sambandsins til uppbyggingar innviða og velferðarkerfis. Ákvörðun sambandsins um að loka á því sem næst öll samskipti við Rússland, þ.á.m. orkuviðskipti, hefur bitnað verst á aðildarríkjunum sjálfum, en ódýrt framboð á rússnesku gasi og olíu lagði áður grunninn að öflugri iðnaðarframleiðslu leiðandi Evrópuríkja. Stöðvun eldsneytisflutninga um Hormús ­ sund, sem varað gæti í langan tíma, hefur síðan gert illt ástand verra. Fátt virðist því geta komið í veg fyrir að enn harðni á dalnum í efnahagslífi sambandsins; með hækkandi orkukostnaði, samdrætti í iðnaði, rénandi hagvexti, skuldasöfnun og versnandi samkeppnisstöðu. Á sama hátt er líklegt að forsendum aðildarríkjanna til að gera alvöru úr áformum sínum um endurhervæðingu álfunnar verði umtalsverðar skorður settar. Þær kröppu aðstæður sem við er að etja innan sambandsins hafa einnig mótað stjórnmálin, en síðustu ár hafa leiðtogar freistað þess að beina kastljósi að ógninni utan frá í stað þess að takast á við erfiðleikana heima fyrir. Fyrir vikið hafa utanríkismál fengið hærri sess í störfum sambandsins, þótt aukinn sýnileiki utanríkismálanna hafi ekki leitt til þess að meira kapp væri lagt á friðsamlegar umleitanir til að binda enda á stríðsátökin. Þvert á móti virðast leiðtogar sambandsins líta svo á að allt sem þurfi til sé að sjálfir ræði þeir saman á endurteknum fundum sínum innbyrðis. Þannig hafa samtök Evrópuríkjanna, upphaflega stofnuð til að standa vörð um friðinn, að miklu leyti misst sjónar á þessu mikilvægasta markmiði sínu. Vaxandi stríðsvæðing sambandsins hefur jafnframt framkallað breytingar á stofnunum þess og starfsháttum, en frumkvæðisvald í utanríkis- og varnarmálum hefur í auknum mæli flust frá kjörnum fulltrúum aðildarríkja sambandsins til ókjörinna embættismanna framkvæmdastjórnar. Slík samþjöppun valds innan skriffinnskubáknsins í Brussel væri út af fyrir sig ekki áhyggjuefni væri hún tímabundin og henni skorður settar. Auknar valdheimildir framkvæmdastjórnar í fyrri „vopnaviðskiptum“, evrukreppunni, Brexit eða Covid-faraldrinum, benda hins vegar til þess að heimildir af því tagi séu ekki svo auðveldlega afturkræfar og hefur framkvæmdastjórnin æ meir seilst til yfirráða í málaflokkum á meðfæri aðildarríkjanna án þess að stofnsamningar sambandsins væru endurskoðaðir eða fram færi lýðræðisleg umræða um þá hluti á vettvangi sjálfra aðildarríkjanna. Ólýðræðislegir tilburðir sambandsins hafa þó nýlega tekið á sig fleiri myndir. Réttarkerfi forysturíkja hefur verið beitt til að hefta framskrið stjórnmálaafla sem ógnað gæti stöðu núverandi forystuafla í aðildarríkjum, auk þess sem framkvæmdastjórn hefur haft bein afskipti af lýðræðislegum kosningum í Mið- og Austur-Evrópu. Dæmi eru einnig um að blaðamenn og álitsgjafar sem andæft hafa afstöðu sambandsins í utanríkis- og varnarmálum hafi sætt, án dóms og laga, sameiginlegum refsiaðgerðum þess. Með þessum og öðrum aðgerðum, sem vandséð er að samrýmist reglum réttarríkisins sem í fyrstu lágu hugsjón Evrópusamstarfsins til grundvallar, hafa stjórnarhættir ESB óneitanlega dregið æ meiri dám af háttsemi þeirra fjandsamlegu ríkja sem það mest gagnrýnir. Í umræðum undanfarnar vikur hafa stjórnvöld iðulega stutt væntanlega atkvæðagreiðslu um aðild Íslands að ESB þeim rökum að teiknast hafi upp „breytt heimsmynd“, líkt og sjálft hafi ESB ekkert breyst. Nú þegar grimmileg hernaðarátök geisa á ný í okkar heimshluta eftir nær átta áratuga hlé boðar það á hinn bóginn umtalsverða óvissu fyrir framtíð Evrópusamstarfsins í þeirri mynd sem við þekkjum það. Þegar kjósendur ganga inn í kjörklefann í lok mánaðar skiptir máli að þeir einnig hafi það í huga. Gunnar Pálsson, fyrrverandi sendiherra Íslands hjá ESB. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Norwegian company assesses tunnel to the Westman Islands Keyrir áfram fyrir Red Bull Nýtt húðflúr Ariönu Grande vekur athygli Blindi bletturinn MAST neitar að svara um salmonellu Umræðan Varnir Íslands eru traustar Hvers virði er fullveldið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vatnshæð í ánni gæti hækkað á næstu dögum Segja umsamin ákvæði óáreiðanleg „Ef þetta heldur áfram svona þá drep ég hann“ Atburðir í móðu: „Hann átti bara að fara á spítala“ Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitastjórnarmanna Verða áfram í sölu Eldur á iðnaðarsvæði í Hellnahverfi Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Bíða þess enn að lögregla útskýri allar beyglurnar á bílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nýjast á mbl.is » Norwegian company assesses tunnel to the Westman Islands Keyrir áfram fyrir Red Bull Nýtt húðflúr Ariönu Grande vekur athygli Blindi bletturinn MAST neitar að svara um salmonellu Umræðan Varnir Íslands eru traustar Hvers virði er fullveldið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugvöllurinn opnaður aftur „Ef þetta heldur áfram svona þá drep ég hann“ Kristrún skipt um skoðun Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitastjórnarmanna Verða áfram í sölu Eldur á iðnaðarsvæði í Hellnahverfi Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Bíða þess enn að lögregla útskýri allar beyglurnar á bílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum

Share this article