Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðild að ESB – mikil tækifæri glatast í viðskiptum við Kína

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 20.8.2026 | 11:30 Aðild að ESB – mikil tækifæri glatast í viðskiptum við Kína Jónína Bjartmarz Morgunblaðið/Ásdís Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Markmið og tilgangur Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins (ÍKV) er að efla og viðhalda viðskiptatengslum milli landanna. Jafnframt að efla hvers konar tengsl á sviði menntunar og menningar. Aðilar að þessu gamalgróna áhugamannafélagi eru rétt um 80 fyrirtæki. Flest eru þegar í viðskiptum við Kína – ýmist í innflutningi eða útflutningi. Óumdeildar staðreyndir – engin þörf á að segja „já til að sjá“ Mögulega eru forsvarsmenn aðildarfélaga ÍKV ekki alveg allir sama sinnis þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst nk. En í ljósi tilgangs ráðsins teljum við okkur bæði rétt og skylt að halda til haga staðreyndum og upplýsa um það hvaða áhrif aðild að Evrópusambandinu hefði fyrir þessi fyrirtæki og almennt fyrir viðskipti milli Íslands og Kína. Allt staðreyndir og upplýsingar sem ekki þarf að „kíkja í pakkann“ til að sjá – og skilja hvað ESB-aðild fylgir. Fríverslunarsamningurinn við Kína Samningur um fríverslun á milli Íslands og Kína tók gildi árið 2014. Sá samningur myndi falla niður við aðild að ESB, líkt og aðrir fríverslunarsamningar sem Ísland hefur gert sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Samningurinn við Kína hefur þegar leitt af sér stóraukin viðskipti milli landanna og bæði fyrirtæki og fjölskyldur hafa notið góðs af tollfrelsinu jafnt á innfluttar vörur og í útflutningi til Kína. Og það munar um minna, enda Kína líklega orðið annað stærsta viðskiptaland Íslands og viðskipti milli landanna jukust á árinu 2025 á sama tíma og viðskipti við Evrópusambandslönd drógust saman. – Með aðild að ESB yrði einnig endir bundinn á þá hagkvæmu þróun sem orðið hefur undanfarin ár; að Íslendingar kaupi vörur frá Kína – beint og milliliðalaust – í stað þess að kaupa sömu vörur á mun hærra verði í gegnum milliliði í Evrópu eða Bandaríkjunum. Stóraukin tækifæri í útflutningi með beinu flugi Með tilkomu beins flugs milli Keflavíkur og Peking, sem hefst 26. okt. nk. skapast að auki stóraukin tækifæri fyrir tollfrjálsan útflutning, m.a. á ferskum sjávarafurðum og eldisfiski til Kína. Tækifæri sem færu forgörðum ef við yrðum aðilar að ESB. Tollfrelsið sem samningurinn tryggir okkur veitir íslenskum útflutningsfyrirtækjum greiðari aðgang inn á markaði í Kína og tryggir þeim samkeppnishæfni umfram önnur lönd sem ekki njóta fríverslunarsamnings. Fyrir Ísland er þetta jafnframt tækifæri til að jafna viðvarandi halla í vöruviðskiptum til hagsbóta fyrir þjóðarbúið. Mun dýrari innflutningur frá Kína með aðild að tollabandalagi ESB Þrátt fyrir hugsanlega aðild að ESB yrði auðvitað áfram hægt að flytja inn vörur frá Kína, en þær yrðu mun dýrari því ESB nýtur ekki fríverslunarsamnings eins og Ísland. Með aðild að ESB yrðum við því seld undir tolla- og gjaldareglur sambandsins sem myndi leiða til verðhækkana á Íslandi og auka verðbólgu. Sem dæmi má nefna að tollar ESB á bifreiðar frá Kína eru frá 17% og upp í 35% og á fatnað leggjast 12% og upp í 70% tollar. Takmarkanir og bönn ESB Að viðbættum tollum ESB þá yrðum við einnig seld undir alþjóðaviðskiptareglur sambandsins. Þar er um að ræða margs konar tæknilegar hindranir, takmarkanir og bönn við margvíslegum birgjum og vörum – allt til verndar framleiðendum á meginlandi Evrópu. Við myndum glata öllu því svigrúmi sem við nú höfum til sjálfstæðis og sjálfsákvörðunar í þessum efnum. Hægari hagvöxtur í ESB og lakari samkeppnishæfni Í þessu samhengi er og vert að halda til haga öðrum óumdeildum staðreyndum, s.s. þeirri að hægst hefur á hagvexti í ESB. Samkeppnishæfni sambandsins er einnig að veikjast og á sviði nýsköpunar standa bæði Bandaríkin og Kína því langtum framar – enda verður regluverk ESB sífellt meira íþyngjandi. Þau eru þegar mörg dæmin um að íslenskt hugvit og tækni hafi blómstrað, borið ávöxt og orðið að sterkum alþjóðlegum fyrirtækjum, allt utan ESB – en ekki kafnað í regluverkinu innan þess. Allt það sem segir hér að framan eru fyrst og síðast rök gegn aðild Íslands að ESB. Langflest okkar eru auk þess þeirrar skoðunar að verði já-ið ofan á 29. ágúst, með eftirfarandi aðildarviðræðum, þá yrði það Íslandi dýrkeypt og veikti strax stöðu okkar í samskiptum og viðskiptum við lönd utan sambandsins. Bæði til vesturs og austurs. Jónína Bjartmarz, formaður Íslensk-­kínverska viðskiptaráðsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Watson-samtökin krefja ráðherra um úttekt Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Rekinn frá Stjörnunni eftir tæpar tíu vikur í starfi Aðild að ESB – mikil tækifæri glatast í viðskiptum við Kína Banvæna marglyttu rak á land á Spáni Umræðan Varnir Íslands eru traustar Frelsi til að sækja fram Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert ÍE afhjúpar áður óþekkta áhættu á parkinson Tónninn talsvert mildari en áður „Ef þetta heldur áfram svona þá drep ég hann“ Watson-samtökin krefja ráðherra um úttekt Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitastjórnarmanna Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Verða áfram í sölu Eldur á iðnaðarsvæði í Hellnahverfi Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Hafnarstræti undir glerhimin Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nýjast á mbl.is » Watson-samtökin krefja ráðherra um úttekt Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Rekinn frá Stjörnunni eftir tæpar tíu vikur í starfi Aðild að ESB – mikil tækifæri glatast í viðskiptum við Kína Banvæna marglyttu rak á land á Spáni Umræðan Varnir Íslands eru traustar Frelsi til að sækja fram Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum Flugvöllurinn opnaður aftur „Ég hef aðeins áhyggjur af því“ Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitastjórnarmanna Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Verða áfram í sölu Eldur á iðnaðarsvæði í Hellnahverfi Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Hafnarstræti undir glerhimin Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum

Share this article